ÞG Verk og Betri Stofan fasteignasala hafa undirritað samning um sölu á 208 íbúðum í Þorraholti 3–19 í 210 Garðabæ.
Húsin eru þriggja til fimm hæða með tveggja til fjögurra herbergja íbúðum. Íbúðirnar eru af alls kyns stærðum og gerðum, allt frá 60 fm tveggja herbergja upp í 200 fm, 4ra herbergja þakíbúðir. Bílakjallarar eru undir húsunum og fylgja bílastæði í bílakjallara með flestum íbúðum. Íbúðirnar eru bjartar og vel skipulagðar og margar hverjar með stórbrotnu útsýni.
Verið velkomin.
