
Hér er stutt samantekt úr fréttum vegna húsnæðislána. Eftir óvissu síðustu daga þá hafa jákvæðar fréttir komið frá lánastofnunum.
Íslandsbanki býður verðtryggð lán til einstaklinga með fasta vexti til fimm ára, bæði fyrir fyrstu kaupendur og aðra.
Landsbankinn segir: Við bjóðum nú upp á nýjan möguleika, sem er að festa vexti á óverðtryggðu íbúðaláni í eitt ár, en þannig er hægt að fá lægri vexti en voru í boði á óverðtryggðu íbúðaláni með breytilega vexti. Lánið er án uppgreiðslugjalds.
- Breytilegir vextir á óverðtryggðu íbúðaláni bera nú fast vaxtaálag út líftíma lánsins sem leggst ofan á stýrivexti Seðlabankans á hverjum tíma.
- Verðtryggð íbúðalán eru nú eingöngu í boði til 20 ára á föstum vöxtum og aðeins fyrir fyrstu kaupendur. Bæði er hægt að fá lán með jöfnum greiðslum og jöfnum afborgunum.
