Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 104 Reykjavík

Sólheimar 25

68.900.000 kr.

791 þ.kr./m²

43 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
Stærð
87,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1962
Hæð
11. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
70.850.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
70.150.000 kr.
Brunabótamat
53.200.000 kr.

Um eignina

Seld eign í fjármögnunarferli

Jason Kristinn Ólafsson, s. 7751515 og netfang jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Sólheimar 25
, 11. hæð. 87,1 m², þriggja herbergja íbúð sem er teiknuð af Guðmundi Kr. Guðmundssyni.
- Næg bílastæði eru við húsið.
- Nýlegur myndavéladyrasími er í húsinu.
- Myndavélaeftirlitskerfi er í sameign hússins. 
- Húsvörður er í húsinu.
- Tvær lyftur eru í húsinu.
- Öll sameign hússins er til mikillar fyrirmyndar og viðhald á húsinu gott.

Eignin skiptist í anddyri, tvær geymslur, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, eldhús, stofu og tvennar svalir með fallegu útsýni. 
Gólfsíðir gluggar í stofu með glæsilegu útsýni yfir hluta höfuðborgarsvæðisins og til fjalla. Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu og bókasafn. Laugardalurinn er í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem hann hefur upp á að bjóða.

Nánari lýsing:
Anddyri/gangur: Parket á gólfi og fatahengi. 
Svefnherbergi: Gott barnaherbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt hólf og gólf. Salerni, sturta, tveir speglar, vaskur og innrétting.
Hjónaherbergi: Rúmgott og gott skápapláss. Viðar rennihurðir á fataskáp. Útgengt út á svalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Gott skápapláss, háfur, ofn, helluborð og parket á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Gólfsíðir gluggar með útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og til fjalla. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengt út á útsýnissvalir.
Svalir: Rúmgóðar og skv. seljanda var svalahandrið endurnýjað 2022.

Sérgeymsla I: Er staðsett á hæðinni og er 2 m².
Sérgeymsla II: Er staðsett á geymslugangi í kjallara og er 2,5 m².
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í kjallara. Snyrtileg með epoxy gólfi. Útgengt út á lóð.
Þvottaherbergi og þurrkherbergi: Er sameiginlegt á 12. hæð hússins (efstu) með epoxy á gólfi. Þrjár þvottavélar, þurrkari, strauvél og vinnuborð. Bjart rými með glæsilegu útsýni.
Sameiginlegar svalir: Eru staðsettar á þaki hússins. Glæsilegt 360 gráðu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið.
Sameiginlegt smíðaherbergi er í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is

Staðsetning

Sólheimar 25, 104 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin