Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 101 Reykjavík

Brávallagata 20

69.900.000 kr.

832 þ.kr./m²

28 myndir

Tegund
Fjölbýli
Stærð
84 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1933
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
75.650.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
74.850.000 kr.
Brunabótamat
46.300.000 kr.

Um eignina

Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, vel skipulagða og sjarmerandi 84fm, 3ja herbergja íbúð að Brávallagötu 20, 101 Reykjavík. Húsið er steinsteypt fjölbýlishús teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni arkitekt. Í húsinu eru 3 íbúðir, ein á hverjum palli. Húsið stendur á eignarlóð og er sambyggt á göflunum húsunum á næstu lóðum til beggja hliða. Hlutdeild í lóð skiptist jafnt milli eignanna þriggja í húsinu Eignin skiptist í hol, eldhús, tvær rúmgóðar stofur (önnur stofa nýtt sem svefnherbergi), rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Í sameign er sameiginlegt þvottahús.

Staðsetning eignarinnar er mjög góð á rólegum stað í "gamla vesturbænum" þaðan sem stutt er í skóla á öllum stigum, öll helsta verslun og þjónusta í göngufæri ásamt fjölbreyttri flóru af kaffi- og veitingastöðum svo eitthvað sé nefnt. 


Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin Brávallagata 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-4261, birt stærð 84.0 fm, þar af er sérmerkt geymsla í kjallara merkt 0003 skráð 9.8fm. 

Nánari lýsing:
Stigagangur: Ein íbúð á hverjum palli. Fatahengi með hillu og skóskáp. Íbúð nýtir stigagang á sinni hæð sem forstofu.
Hol: Komið inn í hol úr stigagangi. Úr holi er gengið inn í stofu, eldhús og svefnherbergi.
Eldhús: Ljós innrétting með eldavél og háf fyrir ofan ásamt eldhúsvaski. Aðstaða fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi: Bað með sturtu, kláosett, upphengdur vaskur með spegli fyrir ofan vask ásamt upphengdum skáp. Flísar á gólfi og á hluta veggja.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott svefnherbergi með fataskápum.
Stofa I: Rúmgóð og falleg stofa. Samliggjandi og hálf opin við borðstofu (borðstofa nýtt í dag sem svefnherbergi).
Stofa II / Svefnherbergi II: Samliggjandi og hálf opin við stofu. Í dag nýtt sem svefnherbergi. Útgengt út á rúmgóðar suðvestur svalir.
Svalir: Rúmgóðar suðvestur svalir.
Geymsla: Sér geymsla í kjallara, 9,8fm.

Parket er á gólfum í íbúðinni nema á baðherbergi sem er flísalagt. Gengið er inn um sameiginlegan inngang þriggja íbúða, ein íbúð á hverri hæð. Skóskápur og hengi á hæð tilheyrir íbúð. Komið er inn í hol og þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar. 

Falleg 3ja herbergja íbúð í afar vinsælu, fallegu og grónu hverfi í gamla Vesturbænum. Öll helsta verslun, nærþjónusta sem er í boði í Vesturbæ Reykjavíkur s.s. Vesturbæjarsundlaug, Melabúðin og Kaffi Vest í göngufjarlægð ásamt miðbæ Reykjavíkur með allt sem hann hefur upp á að bjóða. Skólar á öllum stigum í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði Reykjavíkurstórveldisins KR í Frostaskjóli.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.

Staðsetning

Brávallagata 20, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin