Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 104 Reykjavík

Álfheimar 19

67.900.000 kr.

873 þ.kr./m²

20 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sérinngangi
Stærð
77,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1960
Hæð
0
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
62.250.000 kr.
Brunabótamat
40.950.000 kr.

Um eignina

Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, vel skipulagða og opna 77,8fm, 3ja herbergja íbúð að Álfheimum 19, 104 Reykjavík. Eignin er á neðstu hæð með sérinngangi í fallegu og vel viðhöldnu fjórbýlishúsi. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, 2 rúmgóð svefnherbergi og geymslu sem er innan íbúðar. 

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin Álfheimar 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-1309, birt stærð 77.8 fm. Allir birtir fermetrar eru innan eignar.


Forstofa: Gengið innum sérinngang. Flísalögð og með fatahengi.
Stofa: Björt, rúmgóð og opin stofa, samliggjandi eldhúsi.
Eldhús: Eldhúsið er opið við stofurýmið. Innrétting með neðri og eftir skápum, flísar á milli skápa. Gott skápa og vinnupláss. Eldavél með helluborði, háfur fyrir ofan helluborð. Aðstaða fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Geymsla: Innan eignar. Gengið í geymslu úr stofu.
Svefnherbergi I: Innaf stofu. Afar rúmgott með þreföldum fataskáp með rennihurðum.
Gangur: Innaf stofu. Gengið í baðherbergi og barnaherbergi úr gangi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdum vaski og spegli fyrir ofan vask. Upphengdur skápur. Baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.

Sameign: Íbúðinni fylgir aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi á hæðinni, innangengt í sameign úr íbúðinni.

Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús í kjallara þar sem hver íbúð hefur tengi fyrir þvottavél.
Garður: Stór sameiginlegur garður báðum megin við húsið.

Viðhald: Múrviðgerðir og húsið málað 2019, endurnýjun á þakjárni fyrr. Skólp og dren endurnýjað ca. 2010 skv. fyrri eigendum.

Góð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í fallegu og vel viðhöldnu fjórbýlishúsi í vinsælu, grónu og fjölskylduvænu hverfi í Álfheimunum. Útivistarsvæðið í Laugardalnum er nánast í bakgarðinum, göngufæri í alla helstu þjónsustu í Glæsibæ og Skeifunni. Leik-, grunn- og framhaldskóli eru í göngufæri. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.

Staðsetning

Álfheimar 19, 104 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin