Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Tví-/þrí-/fjórbýli· 580 Siglufjörður

Hlíðarvegur 22

37.800.000 kr.

224 þ.kr./m²

19 myndir

Tegund
Tvíbýli
Stærð
168,8 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1934
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
37.850.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
37.500.000 kr.
Brunabótamat
66.190.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hlíðarvegur 22, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 223-0402 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hlíðarvegur 22 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 223-0402, birt stærð 168.8 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða efri hæð og ris í tvíbýlishúsi með skjólgóðum garði og bílskúr. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, 3 rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.

Neðri hæð er um 82m² og samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

Forstofa: er flísalögð með góðu fatahengi. 
Eldhús: er með hvítum innréttingum og dökkri borðplötu. Fallegt útssýni yfir fjörðinn er úr eldhúsi. 
Stofa/borðstofa: liggja saman í opnu rými með parket á gólfi. Gott gluggapláss er í rýminu með fallegu útsýni. 
Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með fibo tresbo plötum á veggjum og flotuðu gólfi. Einnig er baðkar með sturtu og gleri, upphengt salerni og innrétting. Aðgengi er að geymslu undir stiga inn af baðherbergi. 
Þvottahús: er með góðu skápaplássi og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Golf er flotað og til staðar er opnanlegur gluggi. 
Geymsla: er inn af anddyri en einnig er gott geymslupláss undir stiga. 

Ris er um 58m² að hluta til undir súð og samanstendur af 3 svefnherbergjum, rúmgóðu sjónvarpsrými og geymslu. Þakgluggar eru í öllum rýmum sem voru endurnýjaðir árið 2025. Risið var tekin í gegn árið 2007 en þá voru veggir klæddir og korkur settur á gólf. Hitaveiturofnar á efri hæð voru settir upp árið 2019. 

Svefnherbergi: eru mjög rúmgóð með kork á gólfi. 
Sjónvarpsrými: er mjög rúmgott með kork á gólfi. 
Geymsla: er með góðu hilluplássi og kork á gólfi. 

Eignin er byggð í Funkis stíl og er múrhúðað að utan. Byggð hefur verið rúmgóð timburverönd fyrir framan inngang eignarinnar með skýli fyrir norðanátt og einnig fyrir ofan inngang.
Bílskúr er á lóð eignarinnar sem er skráður 28,8 m². Hann er klæddur með bárujárni, óeinangraður og án hita og rafmagns en gefur ýmsa möguleika. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

 

Staðsetning

Hlíðarvegur 22, 580 Siglufjörður

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin