Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 221 Hafnarfjörður

Lindarberg 8

235.000.000 kr.

597 þ.kr./m²

83 myndir

Tegund
Einbýlishús á þremur hæðum
Stærð
393,6 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
3
Byggingarár
1990
Hæð
1. hæð
Inngangur
Fleiri en einn
Fasteignamat
147.250.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
147.550.000 kr.
Brunabótamat
205.100.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Lindarberg 8, 221 Hafnarfjörður. Glæsilegt 8 herbergja (7 svefnh.) einbýlishús (tengihús) með innb.bílskúr (uþb. 50 m2) samtals 393,6 fm.  Frábær staðsetning og útsýni yfir bæinn og fjörðinn, í hinu vinsæla Setbergslandi Hfj. 

Gengið er inn í húsið á 2. hæð: Forstofur eru tvær, sitt hvorum megin á húsinu. Önnur forstofan er notuð sem fjölskyldu-inngangur og hin sem gesta-inngangur. 
Fjölskyldu-megin er gott fataherbergi inn af forstofunni og innangengt er í bílskúrinn sem er rúmgóður og vel skipulagður.
Miðrýmið er með parket á gólfi, rúmgott eldhús og stofu þar sem er skemmtilegur arinn. Einnig er útgengi út á flísalagðar svalir með tröppum niður á stóran og rúmgóðan sólpall.
Á miðhæðinni eru tvö herbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Gestasnyrting er með flísum á gólfum.
 
Gengið er upp stiga á 3.hæð: Stiginn er með gegnheilu parketi. Tvö stór herbergi, annað með parketi á gólfi og hitt með floti og er undir súð.
 
Gengið er niður á 1.hæð: Samskonar stigi og á 3. hæð. Komið er niður í skemmtilegt opið rými sem skiptist í tómstunda-stofu og sjónvarpsaðstöðu með útgengi út á sólpall. Á 1. hæð eru 3 svefnherbergi, tvö mjög rúmgóð og eitt þeirra með stóru fataherbergi og útgengt er þaðan út á sólpallinn. Stórt glæsilegt baðherbergi með flísum á gólfi. Baðkar og sturta sem grafið hefur verið inn í bergið, virkilega skemmtileg spa stemmning þar. Útgengi er frá baðherbergi og út á sólpall. Einnig er glæsilegt ný-uppgert þvottahús með baðherbergi þar sem flísar eru á veggjum og gólfi.


Garður er mjög fallegur með háum trjám og glæsilegri hellulögn. Tvö hellulögð bílaplön eru við húsið. Einnig eru stæði á móti húsinu fyrir 6-7 bíla.
 
Húsið er á tveimur fastanúmerum samkvæmt þjóðskrá Íslands.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is  löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Lindarberg 8, 221 Hafnarfjörður

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin