Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Tví-/þrí-/fjórbýli· 625 Ólafsfjörður

Túngata 11

38.900.000 kr.

269 þ.kr./m²

19 myndir

Tegund
Tvíbýli
Stærð
144,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1964
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
27.900.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
30.650.000 kr.
Brunabótamat
65.570.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Túngata 11, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-4356 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Túngata 11 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4356, birt stærð 144.8 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða neðri hæð í tvíbýli með innangengum bílskúr og frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, búri, stofu/borðstofu, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, þvottahúsi, geymslu, timburpalli og bílskúr. Íbúðin er á pöllum en svefnherbergin og baðherbergi er á efri palli eignarinnar. Húsið hefur verið klætt að utan með viðhaldsfrírri klæðningu. Búið er að skipta um glugga í eldhúsi og búri. 

Forstofa: er rúmgóð með fatahengi og flísum á gólfi. 
Eldhús: er með rúmgóðri U-laga innréttingu með plássi fyrir borðkrók. Flísar eru á gólfi. 
Búr: er inn af eldhúsi með opanlegum glugga, flísum á gólfi og góðu hilluplássi. 
Stofa: er með góðu gluggaplássi og miklu útsýni í noður og vestur yfir bæinn. Stofa og borðstofa liggja saman með parket á gólfi. 
Baðherbergi: er með baðkari, innréttingu, vask og gólftengdu klósetti. Flísar eru á gólfi og hluta af vegg. 
Svefnherbergi: eru þrjú mjög rúmgóð með fatakápum. Útgangur er út á pall í einu þeirra. 
Þvottahús: er með góðu skápaplássi og vask. Flísar eru á gólfi.  
Geymsla: ber að geyma hitagrind fyrir báðar eignir og inngang inn í bílskúr eignarinnar. Sérinngangur er í geymsluna en einnig er innangengt frá íbúð. 
Bílskúr: er innangengur frá íbúð og með innkeyrsluhurð frá stæði. 
Garður: er grasi lagður með fallegum trjágróðri. 

Staðsetning

Túngata 11, 625 Ólafsfjörður

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin