Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 806 Selfoss

Guðjónsgata 12

29.500.000 kr.

666 þ.kr./m²

17 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
44,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1992
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
25.200.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
27.950.000 kr.
Brunabótamat
30.200.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og fasteignasalan Betri Stofan kynna: Heilsárshús í Úthlíð, 805 Selfoss, Guðjónsgata 12 í Bláskógabyggð.

Heitur pottur er á pallinum. Eignin skiptist í alrými, stofu og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsluskúr sem er ekki í fermetratölu.
Óskráð milliloft er í húsinu.Húsið er í raun skráð 44,3 fm, en er eitthvað stærra.
Hitaveita er komin í húsið, gólfhiti hitar húsið og affall er notað í heita pottinn.

Húsið skiptist í hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi ásamt stofu með eldhúskróki.
Nýlegt gólfefni á gólfum, greni panill á veggjum og í lofti.
Baðherbergi með flísum á gólfi ásamt sturtuhorni.
Eldhús með uppþvottavél, ofni og helluborði.
Gólfhiti með fjarstýringum í stofu, eldhúsi, gangi, baðherbergi og herbergjum.
Heitur pottur, með nýrri pottstýringu og loki, er á pallinum ásamt góðum skjólveggi og sólpalli.

Lóðin er kjarri vaxin ásamt sígrænum trjám, furu og greni, og er staðsett með fallegu útsýni.
Húsið er á leigulóð. Samningur er til 25 ára frá 2024 með forleigurétti.
Stærð lóðar 6.067 fm (0,6 hektari) og er leigulóð til 25 ára. Leigan er rúmlega 200 þús á ári.
Kostnaður við rekstur hússins: Fasteignagjöld í kringum 190 þús á ári Rafmagn og hitaveita 20 þús. á mánuði Sumarhúsafélag, kr. 16 þús á ári
Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni fyrir sanngjarnt verð.

Í nágrenninu er sundlaug, golfvöllur og Réttin, þjónustumiðstöð og veitingastaður Úthlíðar.

Til að komast inn á svæðið þarf að opna með fjarstýringu, einnig er hægt að hringja í hliðið, sem er nálægt Réttinni, þjónusukjarna byggðarinnar.

Nánari upplýsingar veitr: Jason Kr. Ólafsson s. 775 1515  - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Guðjónsgata 12, 806 Selfoss

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin