Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 806 Selfoss

Efsti-Dalur B-gata

30.900.000 kr.

465 þ.kr./m²

23 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
66,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1990
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
26.750.000 kr.
Brunabótamat
29.950.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Jason Kristinn jason@betristofan.is  s. 7751515 kynnir: Fallegt og vel staðsett 66 fm sumarhús á einstökum útsýnisstað í Efsta-Dal í Bláskógabyggð með stórkostlegu útsýni yfir suðurlandsundirlendið og að Eyjafjallajökli, Heklu og víðar. Húsið er 46,5 fermetrar auk um 20 fermetra svefnlofts með góðri lofthæð og stendur á 4.690 fermetra leigulóð á skjólsælum útsýnisstað og gróðri vaxinni lóð. Sælureitur er að auki á lóðinni með útigrilli og borðaðstöðu. Innbú getur fylgt með. Öryggishlið er á svæðinu sem er lokað. Sumarhúsafélag.
Húsið er vel skipulagt og nýtist mjög vel. Hentugt fyrir þá sem vilja eiga sumarhús/heilsárshús í fallegu umhverfi og ekki of stórt.
Eignin er öll nýlega tekin í gegn að innan sem utan.
Nýleg rotþró.

Sýnum daglega.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, í netfangið jason@betristofan.is sími 775-1515

Lýsing eignar:
Forstofa með parketi á gólfi.
Baðherbergi með glugga, innrétting, salerni og góð sturta.
Eldhús, opið við stofu, parket á gólfum, glæný innrétting, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, ofn og spanhelluborð ásamt borðaðstöðu.
Stofa, parket á gólfi og mikil lofthæð. Úr eldhúsi og stofu er útgengt á verönd með einstaklega fallegu útsýni yfir suðurlandsundirlendið.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum.
Svefnloftið getur nýst sem þriðja svefnherbergið. ATH, eignin er skráð 46,5 fm skv. HMS en er í raun 66 fm útaf rúmgóðu svefnlofti.
Svefnloft er yfir helmingshluta bústaðarins og er það rúmgott og með góðum gaflglugga. Stigi er upp á svefnloftið úr forstofu.
Hitaveita er á svæðinu en hún hefur enn ekki verið tekin inn í sumarhúsið. Kalt vatn kemur úr veitu og er húsið kynnt með hitakútum.
Rafmagnskostnaður er í kringum 11 þús á mánuði. 

ATH, eignin er skráð 46,5 fm skv. HMS en er í raun 66 fm útaf rúmgóðu svefnlofti.
Lóðin er leigulóð og er gjaldið ca. 100 þús á ári.
Stutt er í alla þjónustu. 10-15 mínútna akstur er á Laugarvatn, Reykholt, Flúðir og að Geysi.
Góðir golfvellir, gönguleiðir, veitingastaðir, sundlaugar og ýmiss afþreying er þar að auki í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, í netfangið jason@betristofan.is sími 775-1515 löggiltur fasteignasali
 

Staðsetning

Efsti-Dalur B-gata, 806 Selfoss

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin