Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 805 Selfoss

Öndverðarnes S6

29.500.000 kr.

1.143 þ.kr./m²

5 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
25,8 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2011
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
18.450.000 kr.
Brunabótamat
8.490.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Jason Kristinn sími 7751515 jason@betristofan.is  kynna: Sumarbústað á nýrri hluta, fyrir ofan golfvöllinn í Öndverðarnesi; Stangarbraut 6, 805 Selfoss.

Um er að ræða 6000 fm kjarrivaxna leigulóð Múrarameistarafélags Reykjavíkur til 99 ára í afar fallegu umhverfi. Öndverðarnessvæðið er lokað með rafmagshliði (símahlið). Innan svæðisins er félagsaðstaða/golfskáli sem hægt er að leigja fyrir afmæli og aðra mannfögnuði, leiktæki fyrir börn og lítill 6 holu æfingagolfvöllur, frítt fyrir lóðarhafa ásamt því að bústaðnum fylgir frír aðgangur í sundlaug svæðisins. Glæsilegur 18 holu golfvöllur er innan svæðisins. Umsjónarmaður starfar allt árið á svæðinu og sér m.a. um rekstur sundlaugar og snjómokstur.

Bústaðurinn er skráður 25 fm samkvæmt þjóðskrá og er bjálkahús en er í raun stærri vegna geymslu.
Skiptist í stofurými, baðherbergi og opið svefnrými. Virkar sem gott gestahús og er svipað stúdíóíbúð.
Komið er rafmagn og heitt vatn í hús. 
Heitur pottur sem er alltaf með nýju heitu vatni, því að affall er notað í pottinn. 
Í næsta nágrenni er einn flottasti 18 holu golfvöllur landsins, Öndverðarnes golfvöllurinn sem er frá 1974. 

Allar nánari upplýsingar gefur:
 Jason Kristin Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 eða jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali

Staðsetning

Öndverðarnes S6, 805 Selfoss

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin