Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 805 Selfoss

Mýrarkot Leigut.

67.800.000 kr.

498 þ.kr./m²

49 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
136,2 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2003
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
65.350.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
68.750.000 kr.
Brunabótamat
9.830.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Mýrarkot lóð 1, 805 Selfoss / Grímsnes og Grafningshreppi. 117,1 fm. sumarhús á steyptum sökkli og gólfplötu, ásamt 19,1 fm. geymsluskúr/gestahús. Samtals 136,2 fm.  Heitt vatn er á svæðinu.Eignirnar eru á 8.800 fm. eignarlóð. 

Sumarhúsið er klætt að utan með lituðu bárujárni og timbri. Sumarhúsið var byggt 2016 en geymsluskúrinn/gestahús árið 2003. Gólfhitalagnir eru í húsinu. Geymsluskúr/gestahús sem er einangrað og plastað að innan. 

Eignin er í skammtímaleigu hjá bæði booking og airbnb og er með öll tilskilin leyfi þar að lútandi. Hún hefur því  tekjumöguleika.  

Eignin skiptist í eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og  22.2 m² svefnloft.  
Samkvæmt teikningu eru þrjú herbergi í sumarhúsinu en þriðja rýmið er nýtt sem sjónvarpshol en auðvelt er að breyta því aftur í herbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa : Flísar á gólfi. Fataskápur
Stofur: Harðparket á gólfi og upptekið loft.  Útgengt á verönd.  
Eldhús: Upptekið loft. Svört innrétting með eikarborðplötu, upphengdum skápumog eyju með gashelluborði.
Baðherbergi:  Flísar á gólfi. Svört innrétting. Sturta, upphengt wc og tengi fyrir þvottavél.  Útgengt er á verönd af baðinu.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi. Fataskápur
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi. Fataskápur

Timburstigi  liggur upp á  svefnloft sem er skráð 22.2 m². 
Rýmið er opið, með tveimur þakgluggum auk glugga á stöfnum. Geymslur eru undir súð. Harðaparket er á gólfi.

Gestahús: Stendur við hlið sumarhússins. Geymslan/gestahúsið stendur á á timburstaurum. Að utan er það klætt með liggjandi timburklæðningu og er bárujárn á þaki. Geymslan er óinnréttuð.
Kominn er tími á að mála utanhússklæðningu.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Mýrarkot Leigut., 805 Selfoss

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin