Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 815 Þorlákshöfn

Sambyggð 18

48.900.000 kr.

579 þ.kr./m²

38 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sérinngangi
Stærð
84,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Lyfta
Já
Fasteignamat
50.300.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
53.100.000 kr.
Brunabótamat
52.300.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu: 
eignina Sambyggð 18, 815 Þorlákshöfn, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 251-0391 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Sér inngangur er inn í 84,5 fm íbúðina sem er á 1. hæð.
Hún skiptist í :
Forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara, geymslu innan íbúðar og nærri 40 fm alrými eldhúss og stofu. Möguleiki á að bæta við 3ja svefnherberginu þar.
Lofthæðin er nærri 280 sm sem gefur upplifun á meira rými.
Gengið er út í garðinn á steyptan sérafnotareit. Gólfefni eru harðparket og flísar.
Bað- og eldhúsinnréttingar er hvít sprautulökkuð með gráum borðplötum og burstuðu stáli á milli skápa í eldhúsinu. Hvítar innihurðar. 

Sameignin telur stigahús með lyftu, lagna-, hjóla- og vagnageymslu.  
Húsið er stálgrindarhús einangrað að utan með innbrenndu áli. Þrefalt gler í gluggum.
Rafbílahleðsla er á bílastæði. 
Eignin Sambyggð 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-0391, birt stærð 84.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.

Staðsetning

Sambyggð 18, 815 Þorlákshöfn

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin