Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Tví-/þrí-/fjórbýli· 640 Húsavík

Hraunholt 15 102

74.500.000 kr.

671 þ.kr./m²

11 myndir

Tegund
Fjórbýli
Stærð
111,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
3.780.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is og  Betri Stofan kynnir: Hraunholt 15 - nýbygging: 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð merkt 102. Eignin er með stofu, 2 svefnherbergjum, anddyri, eldhúsi, baðherbergi og 13 fm geymslu.  Hraunholt 15. Fjórbýlishús á tveimur hæðum. Útveggir úr timbri með stigakjarna uppsteyptan ásamt steyptum burðarveggjum í hvorri íbúð, annars timbur burðarveggir klæddir með krossvið og gipsi beggja vegna. Húsið er klætt að utan með álklæðningu Ral 7016 frá Límtré/Vírnet.
Gluggar eru með álkápu að utan Ral 7016 og hvítmálaðir að innan. Þak með. svartri báru, rennum og niðurföllum.
Íbúðir skilast fullmálaðar með hvítri málningu.
Innréttingar eru frá HTH. Gólfefni, (harðplast og flísar) og yfirfelldar innihurðar, hvítar.
Forstofa er með fataskáp. Eldhús er í alrými eignanna. tvö svefnherbergi ásamt baðherbergi og þvottahúsi.
Eldhúsinnrétting frá HTH. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél ,bakarofn og helluborð eru frá AEG. Sjá fylgigögn.
Baðherbergi er flísalagt bæði á gólfi og veggjum. Hreinlætistæki eru frá Ísleifi Jónssyni.
Baðinnrétting frá HTH fylgir. Sturta með glerskilrúmi er á baðherbergi. Innrétting fyrir þvottavél og þurkara frá HTH fylgir ásamt tengibúnaði. Stofa er rúmgóð með stórum gluggum og útgengi út á verönd/svalir úr eldhúsi. Gólfefni. er harðparketi en gólf á baðherbergi og þvottahúsi er flísalagt. Gólfhiti er á allri íbúðinni með hitastýringu á veggjum. Raflagnir eru í samræmi við teikningar hönnuðar með innfeldum lýsingum í lofti. Sjá teikningar
Geymsla á lóð ca. 12 fermetrar fylgir minni íbúðinni ,  ofnar á veggjum. Bílskúr ca. 30 fermetrar fylgir stærri eigninni. Hiti í gólfi.
Tengirými er  undir stiga í stigagangi. Bílastæði sem tilheyra eigninni  fyrir framan hús og bílskúr eru malbikuð. Sorptunnuskýli eru á lóð.
Lóðafrágangur, hellulagt er fyrir framan hús og geymslur, aftan við bílskúr og milli húss og geymslu.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
 

Staðsetning

Hraunholt 15 102, 640 Húsavík

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin