Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 109 Reykjavík

Engjasel 29

82.900.000 kr.

695 þ.kr./m²

42 myndir

Tegund
Fjölbýli
Stærð
119,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1974
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
72.200.000 kr.
Brunabótamat
67.890.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Atli S. Sigvarðsson fasteignasali kynna nýtt í einkasölu: Rúmgóð falleg og mjög vel skipulögð 4ra - 5 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli, einstakt útsýni yfir borgina og stæði í bílageymslu. Eignin telur: anddyri, stórt opið alrými sem saman stendur af sjónvarpsholi, góðri stofu og borðstofu (borðstofa getur nýst sem 4. svefnherb. skv. teikn), þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign fylgir geymsla og stæði í lokaðri bílageysmlu.

Nánari lýsing: 

Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur í holi.
Stofa / sjónvarpshol / borðstofa: Mynda opið, stórt og bjart alrými, frábært útsýni og útgengt á svalir (hægt að stúka af 4. svefnherbergið í borðstofu).
Eldhús: Falleg innrétting með fínum tækjum, parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú: tvö þeirra mjög stór með fataskápum, parket á gólfum. 
Baðherbergi: Flísalagt og fallegt með nýlegri innréttingu, gólfhita, vegghengdu salerni og stóru baðkari með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél á baði. 
Sameign: Snyrtileg, góð geymsla og stæði í lokaðri bílageymslu. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. 
Búið er að endurnýja ofna í íbúð og sameign / stigagangi.
Fasteignamat 2026 kr. 72.200.000,-

Þetta er sérstaklega rúmgóð og falleg íbúð með frábæru útsýni yfir borgina.
Allar upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is

Staðsetning

Engjasel 29, 109 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin