Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 110 Reykjavík

Helluvað 13

78.800.000 kr.

820 þ.kr./m²

26 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
96,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
74.050.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
74.750.000 kr.
Brunabótamat
59.690.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala  og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:

Eignina Helluvað 13, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-07, fastanúmer 228-2902 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Um er að ræða íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara. Íbúðin er vel skipulögð 3ja herb íbúð á 2.hæð í fjölbýlishúsi í Norðlingaholtinu.
Íbúðin er björt með útsýni frá svölum og stofu að Elliðavatni og fjallahringinn og til Esju úr svefnherbergjum. 

*** Stæði í bílakjallara ***
*** Stutt í náttúru og skóla ***

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp og flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Opið eldhús með fallegri innréttingu og parketi á gólfi. 
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á góðar svalir. Svalirnar eru rúmgóðar og snúa í suðaustur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu og baðkari. 
Rúmgott hjónaherbergi með parketi og góðu skápaplássi.
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp.
Þvottahús með flísum á gólfi. 
Viðarparket er fljótandi yfir alla íbúðina, nema á votrýmum eru flísar.

Í sameign er vagna og hjólageymsla. 
Sérmerkt geymsla í sameign sem er 7 fm
Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og fer lyfta úr bílakjallara beint fyrir framan íbúð, einungis tvær íbúðir eru á hæðinni. Sameiginleg þvottaaðstaða er í bílakjallara. komið er tengi fyri rafhleðslustöð frá ON við bílastæðið.

Staðsetningin á Helluvaði er mjög góð m.t.t. fjarlægðar frá skóla. Engin gata í skóla og göngufæri ca. 3 mínútur. Fylkir (fimleikar, karate, Parkour, rafdeild)  ásamt dansskóla ofl. í nágreninu.
Stutt í fallegar gönguleiðir s.s. við Rauðavatn, Heiðmörk, Elliðaárdalinn og í Víðidal.

Eignin Helluvað 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 228-2902, birt stærð 96.1 fm.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.

Staðsetning

Helluvað 13, 110 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin