Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 805 Selfoss

Grensás 26

94.900.000 kr.

930 þ.kr./m²

9 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
102 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
3.350.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í einkasölu glæsilegt heilsárshús  í Búrfellslandi, Grímsnes- og grafningarhrepppi.
Húsið er skráð 102fm og stendur á fallegri 5560 fm2 eignarlóð. 30fm svefnloft er ekki skráð. Samkvæmt skipulagi er möguleiki að bæta við um 40fm gestahúsi.

Eignin skiptist í góða bjarta stofu með stórum glugga, eldhús, 3 svefnherbergi, svefnloft, tvö salerni (annað innaf hjónaherbergi), geymslu og þvottahús.
Staðsetning er frábær, víðsýnt, fallegt umhverfi og útsýni.


Húsið selst fullklárað að innan og utan með sólpalli til suðurs með heitum potti.
Loftin verða klædd með hljóðeinangrandi hvítum loftdúk.
Plata er steypt með gólfhita. 
Gluggar í suður eru frá gólfi og upp í gafl. Torfþak á húsi.
Myndir eru af samskonar húsi.

Unnið er að byggingu hússins - afhending sumar 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í 899-1178 / atli@betristofan.is

Staðsetning

Grensás 26, 805 Selfoss

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin