Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 580 Siglufjörður

Hávegur 58

82.900.000 kr.

352 þ.kr./m²

32 myndir

Tegund
Einbýlishús á tveimur hæðum
Stærð
235,2 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1977
Hæð
1. hæð
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignamat
63.050.000 kr.
Brunabótamat
108.000.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hávegur 58, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0356 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hávegur 58 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0356, birt stærð 235.2 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús í hæðum Siglufjarðar með frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, 5 svefnherbergjum, baðherbergi, gestasalerni, þvottahúsi, geymslu og bílskúr. Stór timburpallur er bak við eignina með skjólveggjum og heitum og köldum potti. Steypt bílaplan er með hitalögnum. Eignin stendur í enda botnlangagötu og efst í byggð Siglufjarðar. 

Búið er að endurnýja 
-Gler og hluta af gluggum í eigninni. 
-Þak, þakkanta og rennur. 
-Rafmagn efri hæðar og hluta neðri hæðar. 
-Neysluvatnslagnir og hluta af ofnalögnum/ofna.
-Eldhúsinnrétting, gólfefni, hurðar og loftaklæðningu. 
-Bílastæði steypt með snjóbræðslu og lýsingu. 
-geymsluloft útbúið með aðgang frá palli. 
-timburpallur með skjólveggjum og þriggja fasa rafmagn lagt fyrir heitapott. 
-nýtt rafmagn dregið í bílskúr. 

Neðri hæð:
Forstofa: er parketlagt með ágætis hengi. 
Svefnherbergi: eru tvö á neðri hæð með parket á gólfi. 
Gestasalerni: er með flotuðu gólfi, vask og salerni. Opnanlegur gluggi er til staðar. 
Þvottahús: er mjög rúmgott með skápaplássi, vask og sér inngang. 
Geymsla: er ca 27m2 að stærð með máluðu gólfi. Upphækkun er á gólfi í geymslu. 

Efri hæð: 
Eldhús: er með hvítum innréttingum og svartri borðplötu. Búrskápur er við enda, innbyggður ofn og örbylgjuofn, helluborð og stór vaskur. Eyja er með skúffuplássi og sætum við enda. 
Stofa-borðstofa-sjónvarpstofa: liggja saman í opnu rými með eldhúsi. Mikið og fallegt útsýni er úr stórum gluggum í rýminu. 
Svefnherbergi: eru 3 á efri hæðinni öll með parket á gólfi. Eitt herbergjanna er notað sem fataherbergi í dag og er því fyllt skápum með speglahurðum.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og vegg, innréttingu, baðkari, og salerni. 
Pallur: útgengt er út á timburpall með skjólveggjum á efri hæð. Á palli er tengi fyrir rafmagnspott og kaldan pott. Einnig er afgirt hundasvæði á lóð með hliði á tveimur stöðum.  

 

 

Staðsetning

Hávegur 58, 580 Siglufjörður

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin