Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Hæð· 580 Siglufjörður

Aðalgata 24

41.000.000 kr.

325 þ.kr./m²

18 myndir

Tegund
Hæð í þríbýlishúsi
Stærð
126 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1964
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
27.550.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
32.300.000 kr.
Brunabótamat
64.450.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Aðalgata 24, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0083 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Aðalgata 24 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0083, birt stærð 126.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða þriggja/fjögurra herbergja hæð í miðbæ Siglufjarðar. Eignin samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, tveimur svefnherbergjum, auka svefn/vinnurými, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og svölum. Mikil lofthæð er í stofu með stórum gluggum og frábæru útsýni. Allar vatnslagnir og frárennsli var endurnýjað 2023 og eru nýir ofnar í íbúðinni. Nýlegar hurðar eru á inngangi og svölum. Þak var endurnýjað fyrir einhverjum árum.
Anddyri á neðri hæð, steyptur snúinn stigi upp í íbúðina. Í húsinu er nýstofnað húsfélag með reglulegar tekjur sem nýtast til viðhalds hússins.

Anddyri: er með grófu teppi á gólfi.
Geymsla: er inn af anddyri með góðu hilluplássi og steyptu gólfi. Einnig er gott geymslurými á gangi á efri hæð.
Eldhús: er með grárri innréttingu og dökkri borðplötu. Gólf er flotað.
Stofa: er rúmgóð með mikilli lofthæð og stórum gluggum með góðu útsýni. Parket er á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi, en einnig hægt að nýta sérútbúið rými þar sem farið er út á svalir sem auka svefnherbergi eða vinnurými. Parket er á gólfi í öðru svefnherberginu dúkur á hinu.
Baðherbergi: er með frístandandi baðkari, innréttingu með vaski, nýjum handklæðaofni og nýlegu klósetti. Gólf er flotað og lagnir eru nýjar.
Þvottahús: gluggi í suður með opnanlegu fagi, nýr handklæðaofn, skolvaskur og hillur.
Garður: sameiginlegt skjólsælt rými og svalir í austur.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin