Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 580 Siglufjörður

Hafnargata 14

39.900.000 kr.

390 þ.kr./m²

21 myndir

Tegund
Einbýlishús á tveimur hæðum
Stærð
102,2 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1926
Hæð
1. hæð
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignamat
28.200.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
28.150.000 kr.
Brunabótamat
44.150.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hafnargata 14, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0287 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hafnargata 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0287, birt stærð 102.2 fm.


Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.

Um er að ræða einbýlishús með frábæru útsýni yfir fjallahringinn, timburpalli og garðskúr. Eignin samanstendur af forstofu á báðum hæðum, eldhúsi, stofu, borðstofu, baðherbergi, þremur svefnherbergjum, geymslu og háalofti. Byggður var timburpallur aftan við eignina með 9fm garðskúr. Einnig var útbúið bílastæði við hlið eignarinnar með steyptum veggjum og plani. 

Neðri hæð samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum og baðherbergi. 

Forstofa: er með parket á gólfi.
Svefnherbergi: eru þrjú í heildina misstór með parket/dúk á gólfi. 
Baðherbergi: er með frístandandi sturtuklefa, vask, innréttingu, salerni og aðstöðu fyrir þvottavél. 

Efri hæð samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, geymslu, háalofti og aðgengi út á pall. 

Forstofa: er með dúk á gólfi. 
Eldhús: er með hvítri innréttingu og dúk á gólfi. Inn af eldhúsi er síðan rúmgóður borðkrókur með frábæru útsýni yfir fjörðinn. 
Stofa-borðstofa: liggja saman í rúmgóðu rými með parket á gólfi. Mikið útsýni er úr stofu. 
Geymsla: er með ágætis hilluplássi og aðgengi upp á háaloft. Dúkur er á gólfi. 
Pallur: er aftan við eignina með timburskjólveggjum og 9fm garðskúr. 
Garður: er grasilagður og umlykur eignina.



 

Staðsetning

Hafnargata 14, 580 Siglufjörður

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin