Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 101 Reykjavík

Kolagata 1

Tilboð

25 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
117,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Hæð
3. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
97.650.000 kr.
Brunabótamat
80.800.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn sími 7751515 kynnir: Rúmgóða 3ja herbergja íbúð við Kolagötu 3, á 3ju hæðinni. Laus strax við kaupsamning.
Það hefur aldrei verið búið í íbúðinni.
Íbúðin er á einu skemmtilegasta svæði miðborgarinnar. Í eigninni er aukin lofthæð með stórum björtum gluggum. Útsýni til sjávar að hluta. 

Nánari lýsing íbúðar:
Forstofa: Anddyri: Fataskápar eru í anddyri sem eru spónlagðir að innan með lýsingu og hurðum. Ytra byrði er sprautu lakkað í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð. 
Alrými: Eldhús/borðstofa/stofa: Svalir til suðausturs. Opið rými.
Innréttingar: Vandaðar innréttingar frá Þýskalandi og GKS með ljúflokunum á skápum og skúffum.
Baðherbergi: Er flísalagt með ítölskum gæðaflísum með marmaramynstri frá Iris. Innrétting er í litaþema íbúðar, háglans grá frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Speglalýsing á baðherbergjum er Mini Glo Ball frá Flos. Hreinlætistæki eru frá Vola. Salerni upphengd með innbyggðum vatnskassa.
Hjónaherbergi: Fataskápar í svefnherbergjum eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra byrði sem eru sprautu lakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð. Baðherbergi innaf hjónaherbergi með sturtu. 
Svefnherbergi II., á teikningu er þetta sjónvarpsherbergi en búið er að loka herberginu með innihurð.
Þvottaherbergi: Flísalögð með sömu flísum og í baðherbergi. Innrétting er frá Noblessa í sama litaþema. vinnuvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 6,5 fm geymsla í sameign, merkt á teikningu 0010.  Gólf í séreignageymslu er lakkað, geymslan er með kerfislofti. Léttir veggir eru úr gipsplötuveggjum, málaðir í ljósum lit.
Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameignir og lóð skilast fullfrágengin.
Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum, sjá nánar á vefslóð: www.hafnartorg.is/bilageymsla.

Húsið: Útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. Dyrasími með myndavél frá Bticino og þráðlausu e-net ljósastýrikerfi frá GIRA. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi þar sem upphituðu fersklofti er dælt inn í íbúðir og í votrýmum er vélrænt útsog.

Stutt í alla þjónustu, verslanir og menningu. 

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - löggiltur fasteignasali, netfang: jason@betristofan.is 

Staðsetning

Kolagata 1, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin