Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 101 Reykjavík

Hverfisgata 94 403

117.900.000 kr.

958 þ.kr./m²

43 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
123,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2018
Hæð
4. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
108.500.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
108.000.000 kr.
Brunabótamat
90.440.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólasson, sími 7751515 eða netang jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna til sölu: Hverfisgata 94, 4. hæð. Virkilega vandaða og vel skipulagða 123,1 fermetra 3ja herbergja íbúð í glæsilegri nýbyggingu með lyftu á frábærum og rólegum stað í miðborginni auk sér bílastæðis í bílageymslu í lokuðum og upphituðum bílakjallara.  Gólfhitakerfi er í íbúðinni.
Eignin er öll innréttuð á vandaðan og smekklegan máta og eru innréttingar sérsmíðaðar úr svartbæsaðri eik og ná upp í loft.  Innfelld lýsing er í loftum að hluta og kvartsteinn er á borðum innréttinga í eldhúsi og í baðherbergi.  Sameign hússins er öll til fyrirmyndar og mjög smekklega innréttað anddyri. Myndavélakerfi er við inngang í húsið og mynddyrasímakerfi og rafmagnsopnun er á hurðum í sameign.
Mikið er lagt upp úr hönnun hússins, jafnt að utan sem innan. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum og fallegum efnum. Byggingin er U-laga og rammar inn sameiginlegan skjólgóðan sameiginlegan suður garð.
Lýsing eignar:
Forstofa: rúmgóð, parketlögð og með fataskápum.
Svefnherbergi: stórt, parketlagt og með fataskáp.
Hjónaherbergi: stórt, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi: rúmgott, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borðum, fastir speglar, vegghengt wc, handklæðaofn og stór flísalögð sturta með sturtugleri.
Þvottaherbergi: flísalagt gólf og innréttingar með stæði fyrir vélar í vinnuhæð, vinnuborði, vaski og fatahengi.
Stofa: parketlögð og með gólfsíðum gluggum að hluta.
Eldhús: opið við stofu, parketlagt. Fallegar svartbæsaðar eldhúsinnréttingar með kvartsteini á borðum og gleri á milli efri og neðri skápa. Spanhelluborð með innbyggðum háfi yfir. Innbyggður ísskápur með frysti. Eyja með kvartsteini á borðum og áfastri borðaðstöðu. Innbyggð uppþvottavél er í eyju og hangandi ljós yfir eyjunni fylgja. Úr eldhúsi og stofu er útgengi á rúmgóðar og skjólsælar svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi og handriði úr gleri. Fallegt útsýni er að Esjunni.
Stór sameiginleg lóð er til suðurs með tyrfðri flöt.
Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með lögn að bílastæði til að setja upp rafhleðslustöð.  Mjög rúmt er um bílastæðið og aðkoma að því góð.
Sérgeymsla, 6,3 fermetrar að stærð og er innifalin í 123,1 fermetra stærð eignarinnar.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á baklóð hússins.  Innst í hjólageymslu hefur verið sett upp líkamsræktar aðstaða fyrir húsið með tækjum.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu, veitingahús, söfn o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Hverfisgata 94 403, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin