Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 101 Reykjavík

Klapparstígur 14

73.500.000 kr.

962 þ.kr./m²

29 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
76,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
72.050.000 kr.
Brunabótamat
45.400.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Betri Stofan og Jason Kr. Ólafsson sími 7751515 og jason@betristofan.is kynna: Klapparstígur 14, fallega og vel skipulagða 3ja herbergja, 76,4 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. 

Laus við kaupsamning

Íbúðin skiptist í eldhús og stofu með útsýni, baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél, tvö svefnherbergi og hægt er að ganga úr þeim út á svalir sem snúa til vesturs og eru með seinniparts sólinni. Íbúðin er með gólfhita.

Klapparstígur 14 er lítið fjölbýli byggt árið 2006  með snyrtilegri sameign með lyftu.

Nánari lýsing.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu.
Stofa er opin við eldhús, með fallegu útsýni til sjávar og fjalla og parket á gólfi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, baðkar með sturtuhaus, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi I er með fataskáp og parket á gólfi, útgengi á svalir til vesturs.
Svefnherbergi II er með fataskáp og parket á gólfi, útgengi á svalir til vesturs inní garð/port.
Sérgeymsla er í kjallara sem er að stærðinni 7 fm birtir, eða 6 fm nettó.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Lyftuhús og mánaðargjald fyrir húsfélag er kr. 40.989-

Íbúðin er vel staðsett í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Íbúðin er skemmtileg og tilvalin fjárfesting fyrir áramót.

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 7751515 og netfang jason@betristofan.is 

Staðsetning

Klapparstígur 14, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin