Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Tví-/þrí-/fjórbýli· 580 Siglufjörður

Laugarvegur 5

20.500.000 kr.

256 þ.kr./m²

18 myndir

Tegund
Tvíbýli
Stærð
80 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1946
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
22.000.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
24.300.000 kr.
Brunabótamat
35.200.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Laugarvegur 5, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0639 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Laugarvegur 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0639, birt stærð 80.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða efri hæð og ris í tvíbýli með tveimur svefnherbergjum og fataherbergi/barnaherbergi inn af öðru þeirra. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, tveimur stofum, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Fallegt útsýni er úr stofuglugga sem er með miklu gluggaplássi. Möguleiki er á að útbúa auka svefnherbergi í annarri stofunni. Ris eignarinnar var endurgerð fyrir stuttu en loftaplötur voru settar í loft og parket á gólf. Þak gluggi er í risi. Svæðið var útbúið sem auka svefnherbergi. Búið er að skipta út ofnum í eigninni og skipt var um vatnsinntak 2024. 

Anddyri: Dökkar flísar eru á gólfi og fatahengi. 
Eldhús: er með gráum Ikea innréttingum efri og neðri skápum og flísum á gólfi. 
Stofa/borðstofa: mjög rúmgott rými sem liggur saman með parket á gólfi. Gott gluggapláss og frábært útsýni. 
Baðherbergi: er með hvítri innréttingu, vask, gólftengdu klósetti, frístandandi sturtuklefa, handklæðaofn og flísar á gólfi. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. 
Svefnherbergi: er með dúk á gólfi og góðum fataskáp. 
Fataherbergi/barnaherbergi: liggur inn af svefnherbergi og er með dúk á gólfi og opnanlegum glugga. 
Þvottahús: er dúkalagt með góðu hilluplássi og opnanlegum glugga. 
Efri hæð: er í opnu rými yfir allri eigninni með þakglugga. Parket er á gólfi. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Betri Stofan - Borgartún 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð
 

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin