Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Atvinnuhúsnæði· 221 Hafnarfjörður

Straumhella 6G

48.100.000 kr.

400 þ.kr./m²

12 myndir

Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
120,1 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2023
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
41.500.000 kr.
Brunabótamat
41.950.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala, Borgartúni 30, 105 Reykjavík kynnir: Glæsilegt, nýtt og vandað tvílyft atvinnuhúsnæði að Straumhellu 6G í Hafnarfirði. Um er að ræða 120,1 fm húsnæði með millilofti, steyptum stiga og 6,9 m lofthæð. Húsnæðið er með  með salernisaðstöðu með handlaug en auk þess er til staðar kaffiaðstaða með skápum og vaski. Stærð neðri hæðar er 80 fm og er efri hæðin 40,1 fm.   Aðkoma að húsinu er með besta móti, lóðin í kringum húsið er rúmgóð og malbikuð. Snjóbræðsla er á gangstéttum fyrir framan húsið og í bílastæðum fyrir hreyfihamlaða.
Aðstaðan og staðsetningin býður uppá fjölbreytilega notkunarmöguleika m.a. tengda ýmiskonar atvinnurekstri. 

Sökklar, útveggir, berandi innveggir, eru úr forsteyptum einingum. Milliplötur eru úr filigran plötum með ásteypulagi. Þak er með sperrum og yleiningum frá Límtré Vírnet. Innkeyrsluhurðir eru Ál-panel hurðar þar sem söluaðili er BM- Vallá. Húsið er loftað með náttúrulegri loftræstingu opnun glugga og hurða. Í aflokuðum gluggalausum rýmum er vélræn loftræsting þar sem það á við.

Húsið er upphitað með hefðbundinni ofnalögn og ofnum og rafmagnstafla frágengin með þriggja fasa rafmagni. Ljós eru frágengin ásamt rofum og tenglum.
Húsnæðið er með vsk-kvöð og laust til afhendingar við kaupsamning.

Byggingaraðili er MótX ehf.

Nánari upplýsingar veita:
Þórir Skarphéðinsson, lögmaður og lögg. fasteignasali, sími 844-9591 eða thorir@betristofan.is
Gunnar S. Jónsson, löggiltur fasteignasali, sími  899-5856 eða gunnar@betristofan.is 
 
 

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin