Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 260 Reykjanesbær

Svölutjörn 69

106.000.000 kr.

699 þ.kr./m²

35 myndir

Tegund
Einbýlishús á einni hæð
Stærð
151,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2005
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
92.600.000 kr.
Brunabótamat
70.650.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Glæsilegt 151,7m2 einbýlishús, þar af 26m2 bílskúr, á góðum stað við Svölutjörn 69 í Reykjanesbæ. Stutt er í skóla og þjónustu. 
Eigandi skoðar skipti á eign í Hafnarfirði. 

Nánari lýsing: Forstofa er flísalögð og með innbyggðum fataskáp. Inn af forstofu er mjög gott svefnherbergi með parketi á gólfi. 
Eldhús er rúmgott með ljósri fallegri háglans innréttingu, granit borðplötum og góðum tækjum, t.d. tveimur ofnum, ofn og örbylgjuofn, innbyggða kaffivél, span helluborði, gólf er flísalagt. 
Flísalagður gangur er í opnu björtu og opnu rými með stofu-, borðstofu og sjónvarpsherbergi. Lítið mál að breyta sjónvarpsherbergi í svefnherbergi.
Loft eru upptekin með halogen lýsingu. 
Gólf eru með fallegu gegn heilu hnotuparketi. Útgengt er úr borðstofu út á fallega glæsilega timburverönd, með heitum potti. 
Hjónaherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi, halogen lýsingu og hnotuparketi á gólfi. 
Útengt er úr herbergi út á timburverönd. 
Baðherbergi er rúmgott og með flísalagt gólf og veggi. Innrétting á baðherbergi er falleg með tækjum hönnuðum af Arne Jakobssen, upphengt salerni, stórt baðkar og stórum sturtuklefa með tveimur sturtuhausum. 
Þvottahús er inn af forstofu með innréttingu og góðu vinnuplássi. Innangengt er úr þvottahúsi inn í bílgeymslu. 
Bílskúr. Sjálfvirkur hurðaopnari, og búið er að bæta við gluggum með opnanlegu fagi á framhlið. Flísalagt gólf og hátt til lofts. Geymsluloft er í bílskúr og er gönguhurð úr bílskúr út í bakgarð.  
Bílahleðsla fylgir með.

Húsið er allt hið vandaðasta. Arkitekt hannaði og teiknaði húsið að innan og eru allar innréttingar sér smíðaðar með spónlagðri hnotu. Hurðar í forstofu og vaskhús eru rennihurðar og opnast inn í veggi rýmisins. Ryksugukerfi er í húsinu og er barki tengdur við kerfið í veggjum íbúðar. Lýsingu í húsinu er hægt að stjórna með fjarstýringu. Auðvelt er að bæta við einu herbergi, þar sem sjónvarpsherbergi er nú.

Heitur pottur frá Trefjum er á verönd.

Staðsetningin er frábær þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla verslun og fallega útiveru.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is 

Staðsetning

Svölutjörn 69, 260 Reykjanesbær

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin