Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 107 Reykjavík

Boðagrandi 6

82.900.000 kr.

855 þ.kr./m²

31 myndir

Tegund
Fjölbýli
Stærð
97 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Hæð
4. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
77.550.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
76.650.000 kr.
Brunabótamat
57.450.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð í litlu fjölbýli að Boðagranda 6, Reykjavík. Eignin er skráð 97 fm að stærð, þar af íbúðarrými 90,6 og geymsla 6,4 fm, og samanstendur af anddyri/holi, eldhúsi, borð- og setustofu, suður svölum, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi ásamt geymslu og sameign. Þvottaaðstaða er í íbúðinni. Einstakt útsýni meðal annars yfir Bláfjöll, Esjuna og Snæfellsnes. 


Nánari lýsing. 
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Ljós og falleg innrétting með miklu skápaplássi, góðri vinnuaðstöðu og baklýstu gleri á milli efri og neðri skápa. Í eldhús er rúmgóður borðkrókur og stór gluggi með útsýni til sjávar. Á gólfi eru flísar. 
Setustofa/borðstofa: Rúmgóð með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og útgengi á stórar og skjólgóðar suður svalir.
Hjónaherbergi: Stórt og rúmgott með stórum fataskáp. Á gólfi er parket.
Barnaherbergi: Parketi á gólfi.
Baðherbergi: Stór eldri innrétting, mikið skápapláss, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, og baðkar með sturtu. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 

Íbúðinni fylgir sérgeymsla á jarðhæð hússins, aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.  Á bak við hús er sameiginlegur garður og nýleg sameiginleg timburverönd. 

Helstu framkvæmdir undanfarin ár:
2025: Nýr glæsilegur pallur byggður í garði.
2025: Blöndunartæki í vask og baði endurnýjuð. Nýtt dyrasímakerfi.
2024: Kaldavatnspípulagnir í húsinu fóðraðar.
2022: Sérsniðnar gardínur og brautir settar upp.
2021: Nýtt parket og listar lagðir á íbúðina.
2021: Innihurðar voru endurnýjaðar ásamt skenk í forstofu og eldhús endurnýjað að hluta. Rofar og tenglar endurnýjaðir í íbúð að hluta.
2019: Stórviðgerð á húsi. Múrviðgerðir og húsið allt málað. Þak: Skipt um bárujárn og hluta af borðaklæðningu. Þakkantur og rennur endurnýjaðar.
2015: Sérsmiðaður sólbekkur á svalir.

Falleg íbúð á frábærum stað í Vesturbænum þar sem er stutt í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði KR, Vesturbæjarlaug og alla helstu verslun og þjónustu. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.



 

Staðsetning

Boðagrandi 6, 107 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin