Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 108 Reykjavík

Grensásvegur 1B

82.500.000 kr.

878 þ.kr./m²

20 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
94 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
76.550.000 kr.
Brunabótamat
60.400.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 kynnir: Grensásvegur 1B íbúð 207, sem er með gólfsíðum gluggum og gólfhita. Fullbúin glæsileg 3ja herbergja, 94 fm íbúð á 2. hæð með 2 svefnherbergjum og suðaustur svölum. Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. T.d. læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, Hagkaup og Elko, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Getum sýnt daglega. 

Nánari lýsing íbúðar 207
Stórglæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja 94 fm íbúð á 2. hæð. Íbúðin er með gólfsíðum gluggum og hita í gólfum.
Gardínur fylgja og innfelld ljós fylgja með íbúðinni sem eru í við skoðun.
Komið er inn í anddyri með fataskáp. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa þar eru gólfsíðir gluggar. Gólfhiti.
Rúmgott bjart eldhús með eyju með spanhelluborði og fallegum háfi, stofa með útgengi á suðaustur svalir. Öll tæki fylgja, ísskápur, ofn ofl. 
Stórt hjónaherbergi og með fataherbergi.
Svefnherbergi II með fataskáp. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. 
Þvottaaðstaða inná baðherbergi.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, og er hún 7,8 fm. 

Möguleiki er að leigja stæði í bílageymslu fyrir sanngjarna upphæð.

Stutt í verslanir, Hagkaup opin 24 klst. er í göngufæri,
Stutt í aðra þjónustu, Laugardalinn, Húsdýragarðinn, sundlaug, íþróttaaðstöðu ofl. 

Bókið skoðun:
Jason Kristinn fasteignasali, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali
 

Staðsetning

Grensásvegur 1B, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin