Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 805 Selfoss

Stangarbraut 26

89.000.000 kr.

994 þ.kr./m²

32 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
89,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2019
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
55.200.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
54.800.000 kr.
Brunabótamat
71.050.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Heilsárshús á golfvallarsvæði með útsýni ásamt gestahúsi. EBK hús frá Danmörku sem stendur við Stangarbraut 26 í Öndverðarnesi. Eignin skiptist í sumarbústað (heilsárshús) auk gestahúss. Húsið er frá árinu 2019 og er í Öndverðanesi nánar tiltekið við Stangarbraut 26, 805 Selfoss.

Húsið er frá framleiðandanum EBK sem er danskt fyrirtæki sem er þekkt fyrir fallega hönnun og gæði. 

Húsið stendur á 5.300 m2 leigulóð með fallegu útsýni yfir ánna og næði frá öðrum sumarhúsum. Stór og mikil verönd nær hringinn í kringum bústaðinn með heitum potti sem er með útgengi úr baðherbergi.
Gólfhiti er í öllu húsinu og er harðparket á öllum rýmum utan baðherbergis.
Heildareignin er 89,5 fm. að stærð og skiptist í 70,6 m2 aðalhús og 20,1 m2 gestahús sem er fullbúið með innréttingu, baðherbergi og eldhúsaðstöðu. 

Aðalhúsið skiptist í eldhús og stofu í góðu alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi ásamt fullbúnu gestahúsi með salerni, sturtu og eldhúsaðstöðu.
  
Nánari lýsing:
Forstofa er með góðu skápaplássi og harðparketi.
Eldhús er mjög snyrtileg með tækjum frá Siemens og góðu vinnuplássi. Útsýni til fjalla og yfir Hvítánna.
Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými með frábæru útsýni, kamínu og (cosý horni) sem kemur út frá stofu.
Hjónaherbergi er með þreföldum fataskáp og harð parketi á gólfi.
Barnaherbergið er með harðparketi á gólfi og er nýtt í dag sem skrifstofa.
Baðherbergið er flísalagt með walk-in sturta, og snyrtilegri innréttingu og upphengdu salerni.
Baðkar var áður þar sem að skápur er í dag og eru blöndunartæki til staðar sem koma út úr veggnum ef að kaupandi myndi vilja setja baðkar aftur í framtíðinni er allt klárt fyrir það.
Heitur pottur á palli og þar til hliðar er gestahúsið.
Gestahús:
Alrými, svefnaðstaða, eldhús og baðherbergi með sturtu. 
Bílastæðið fyrir utan húsið rúmar 4 - 6 bíla.

Staðsetning inná ja.is er hér

Svæðið: 
Bústaðurinn er staðsettur í aðeins 45 mín keyrslu frá Reykjavík og einungis 10 mín akstri frá Selfossi. Öndverðarnessvæðið er lokað með rafmagshliði. Innan svæðisins er 18 holu golfvöllur, leiktæki fyrir börn og lítill 6 holu æfingagolfvöllur, frítt fyrir lóðarhafa ásamt því að bústaðnum fylgir frír aðgangur í sundlaug svæðisins. 

Lóðarleigan er kr. 169 þusund fyrir árið 2026

Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is 

Staðsetning

Stangarbraut 26, 805 Selfoss

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin