Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 580 Siglufjörður

Laugarvegur 39

48.500.000 kr.

402 þ.kr./m²

26 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
Stærð
120,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
32.300.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
33.800.000 kr.
Brunabótamat
65.750.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Laugarvegur 39, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0690 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Laugarvegur 39 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0690, birt stærð 120.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða íbúð á miðhæð í 6 íbúða fjölbýlishúsi með bílskúr og frábæri útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og bílskúr. Eignin hefur verið mikið uppgerð s.s eldhús, baðherbergi, gólfefni, hurðar, gler og listar, vatnslagnir, bílskúrshurð. Fljótandi parket liggur um alla íbúð utan við baðherbergi. Einnig voru endurnýjaðar allar hurðar í sameign, þak, inni- og útiljós, steypuviðgerðir, nýtt myndavéla dyrasímakerfi, skipt um handrið á svölum og þakkantur málaður. Bílskúrhurð var stækkuð ásamt ráphurð. 

Forstofa: er flísalögð með góðu skáparými. 
Eldhús: var opnað í hol og stofu með viðarlitaðri innréttingu og eyju. Skipt var um öll eldunartæki, vask og blöndunartæki. 
Borðstofa/stofa: liggur við eldhús í opnu rými. 
Svefnherbergi: eru þrjú í heildina misstór og hjónaherbergi með rúmgóðum skáp. 
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtuklefa, innréttingu, vask, handklæðaofn og salerni. 
Þvottahús: er sameiginlegt með annarri íbúð á hæðinni. Með góðu þurrkplássi og frágengisborði. 
Geyrmsla: er inn af þvottahúsi sér fyrir hvora íbúð. Með góðu geymslu plássi og hillum. 
Bílskúr: er með plastflísum á gólfi og góðu hilluplássi. Skipt var um bílskúrshurð og innkeyrsluhurð stækkuð. 
Garður: er sameiginlegur með grasflöt og bílastæðum. 

 

Staðsetning

Laugarvegur 39, 580 Siglufjörður

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin