Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Parhús· 580 Siglufjörður

Hafnartún 28

49.900.000 kr.

403 þ.kr./m²

19 myndir

Tegund
Parhús á tveimur hæðum
Stærð
123,7 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1983
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
40.850.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
40.200.000 kr.
Brunabótamat
74.550.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hafnartún 28, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0315 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hafnartún 28 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0315, birt stærð 123.7 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða parhús á tveimur hæðum með góðum garði og fallegu útsýni yfir fjörðinn. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, 4 svefnherbergjum, baðherbergi með útgang út á yfirbyggðar svalir, gestasalerni og þvottahúsi. 
Á neðri hæð eignarinnar eru rúmgóð forstofa, gestasalerni, 3 svefnherbergi, geymsla og þvottahús. Á efri hæð eignarinnar eru eldhús, stofa, borðkrókur, svefnherbergi með mjög góðu skápaplássi og baðherbergi. Útgangur er úr borðstofu út í garð. Miklar endurbætur voru gerðar árið 2020-2021 en þá voru neysluvatnslagnir endurnýjaðar í elldhús, baðherbergi og gestasalerni, skipt um gler og parket endurnýjað. 

Neðri hæð: 
Forstofa: er flísalögð með ágætis skápaplássi og handklæðaofn. Hiti er í gólfi.
Svefnherbergi: eru þrjú á neðri hæð með parket á gólfi
Gestasalerni: hefur verið gert upp með flísum á gólfi, þiljum á vegg, salerni og vask. 
Þvottahús: er með sérútgang, dúk á gólfi og góðri innréttingu. 

Efri hæð:
Eldhús: er með ljósri innréttingu og parket á gólfi. 
Stofa/ borðkrókur: liggja saman með parket á gólfi. 
Svefnherbergi: er með parket á gólfi og sérsmíðuðum skápum frá Brúnás. 
Baðherbergi: er með walk in sturtu með þiljum á vegg og flísum á gólfi, salerni, innréttingu og vask. Útgangur er út á yfirbyggðar svalir. 
Garður: útgangur er út í garð frá stofu. Timbur pallur er út í garði og grasbali. 

 

Staðsetning

Hafnartún 28, 580 Siglufjörður

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin