Fjölbýli· 105 Reykjavík
Brautarholt 20
44.900.000 kr.
1.244 þ.kr./m²
30 myndir
- Tegund
- Fjölbýli
- Stærð
- 36,1 m²
- Herbergi
- 1
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1953
- Hæð
- 4. hæð
- Inngangur
- Sameiginlegur
- Lyfta
- Já
- Fasteignamat
- 40.650.000 kr.
- Fasteignamat næsta árs
- 40.700.000 kr.
- Brunabótamat
- 23.900.000 kr.
Um eignina
Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:
Fallega, vandaða og vel skipulagða stúíóíbúð á fjórðu hæð í uppgerðu lyftuhúsi í grennd við miðbæ Reykjavíkur við Brautarholt 20. Eignin er skráð 36,1 fermetrar, þar af er geymsla 3,2 fermetrar. Svalir snúa í vestur og vísa út í portgarð hússins sem er einungis aðgengilegur fyrir íbúa hússins. Þar er að finna veglega sameign með fundar-/veislusal, fullbúnu þvottahúsi og hjóla-/vagnageymslu. Garðurinn er einstaklega skjólgóður og sólríkur.
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Eignin er fullbúin með gólfefnum, raftækjum og innbyggðu rúmi.
Við hönnun íbúðarinnar var nýting rýmis höfð að leiðarljósi. Íbúðinni fylgir innbyggt rúm, svokallað Murphy Bed sem á einfaldan hátt fellur að vegg ásamt góðri rúmdýnu. Innréttingar og skápar eru frá HTH. Eldhúsinnrétting með grárri mattri áferð, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp og keramik helluborði. Gólfefni eru hágæða vínilparket frá Gólfefnaval. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með vönduðum ítölskum flísum og með innréttingu frá HTH, walk-in sturta.
Vel hefur verið hugað að húsinu að utan en það er á mjög snyrtilegan hátt. Við endurgerð hússins var leitast við að halda klassískum sjarma um leið og vistaverur eru hannaðar með umhverfi og nútímalífsstíl að leiðarljósi.
Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á besta stað í jaðri miðborgarinnar rétt ofan við Hlemm.
**Eignin er í útleigu – möguleiki á að yfirtaka leigusamning.**
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Staðsetning
Brautarholt 20, 105 Reykjavík