Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Laugavegur 170 701

295.000.000 kr.

1.492 þ.kr./m²

41 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
197,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
7. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
60.900.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
67.750.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515, netfang: jason@betristofan.is kynna: Heklureitur -  Laugavegur 170 - Glæsileg Íbúð 701 er 200 fm útsýnisíbúð með 64 fm þakgarði til suðurs og bílskúr. Glæsileg íbúð á 7. hæð (efstu) með 64 fm þakgarði og möguleika á heitum potti. Íbúðin er með 2-3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, þvottahúsi, búri innaf eldhúsi, stofa og eldhús í opnu rými með rennihurð út á 114 fm þakgarð. 23,6 fm bílskúr fylgir og 11,2 fm geymsla innar. 2 stæði í bílageymslu fylgja einnig með íbúðinni, merkt B07 og B08

Heimasíða um Heklureitinn

Glæsileg íbúð á besta stað með útsýni, sérstaklega yfir borgina suðurs og norðurs. Rúmgóð íbúð með rúmgóðum 64 fm þakgarði þar sem gert er ráð fyrir heitum potti og snýr til suðurs. Glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. 2 önnur svefnhbergi eða möguleiki á því og sjónvarsrými. Eldhús og borðstofa með útgengi með rennihurð út í þakgarð. Innaf eldhúsi er búr.  Sér þvottahús. Gestabaðherbergi með sturtu. Sér geymsla innaf bílskúr (11.2 fm)  og tvö bílastæði, nr. B07 og B08 fylgja íbúðinni

Í eldhúsi er eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar. Þema innréttinga í þessari íbúð er Náttúra auk spónlagðir efri skápa.

Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 

Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is

Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / thorhallur@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir, sími 866 1763 / dagrun@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir sími 899 5533 / gudbjorg@betristofan.is

Staðsetning

Laugavegur 170 701, 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin