Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Laugavegur 170 604

269.000.000 kr.

1.340 þ.kr./m²

35 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
200,8 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
6. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
60.900.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
67.750.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515, netfang: jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Heklureitur -  Laugavegur 170 - 4ra herbergja íbúð.  Glæsileg íbúð á 6. hæð með frábæru útsýni. Suður og norðursvalir. Íbúðin er með 3-4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, þvottahúsi, búri, stofa og eldhús í opnu rými með rennihurð og 21,8 fm sérgeymsla fylgir ásamt 2 stæðum í lokuðum bílakjallara.

Þriggja til fjögurra herbergja rúmgóð íbúð þar sem bæði svefnherbergin eru með baðherbergi inn af herberginu (ensuite). Eldhúsið er frábærlega útbúið fyrir matgæðinga þar sem gengið er í gegnum eldhús inn í búr með vaski og plássi sem má innrétta t.d. fyrir stærri vínskáp og auka ísskáp. Þá er möguleiki á að koma fyrir arni í stofu. Í íbúðinni er sér þvottahús. Glæsilega innréttuð íbúð búin öllum nútíma þægindum. 2 stæði í bílageymslu fylgja einnig með íbúðinni, merkt B03 og B04

Heimasíða um Heklureitinn

Í eldhúsi verður eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar. Þema innréttinga í þessari íbúð er Náttúra auk spónlagðir efri skápa.

Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 

Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir s. 899 5533 - gudbjorg@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / thorhallur@betristofan.is

Staðsetning

Laugavegur 170 604, 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin