Raðhús· 101 Reykjavík
Framnesvegur 22
95.900.000 kr.
1.055 þ.kr./m²
38 myndir
- Tegund
- Raðhús á tveimur hæðum
- Stærð
- 90,9 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1922
- Hæð
- 1. hæð
- Inngangur
- Sérinngangur
- Fasteignamat
- 90.650.000 kr.
- Fasteignamat næsta árs
- 90.600.000 kr.
- Brunabótamat
- 48.050.000 kr.
Um eignina
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 – jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna Framnesveg 22 - 101 Reykjavík – sögulegt og heillandi raðhús í gamla Vesturbænum
Fallegt og áhugavert 90,9 fm raðhús á þremur hæðum við Framnesveg í gamla Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið nýtur einstakrar staðsetningar í rólegu og grónu umhverfi, í göngufæri við miðborgina, Vesturbæjarlaug, skóla, leikskóla, verslanir og fjölbreytta þjónustu.
Eignin er með sérinngangi og skiptist í anddyri, eldhús og stofu á miðhæð, tvö svefnherbergi og lítið baðherbergi með salerni og handlaug á efstu hæð og hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og sérgarð á neðri hæð.
Á miðhæð er bjart og notalegt alrými þar sem eldhús og stofa mynda samfellda heild. Úr stofunni er horft út yfir bakgarðinn.
Á efstu hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi með kvistgluggum og aukinni lofthæð. Þar er einnig lítið baðherbergi með salerni og handlaug.
Á neðri hæð er rúmgott hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla og útgengi í sérgarð. Garðurinn hefur verið tekinn í gegn og endurnýjaður á snyrtilegan og aðlaðandi hátt. Garðurinn er afgirtur og býður upp á notalegt og skjólgott útisvæði.
Á undanförnum árum hefur verið ráðist í umfangsmikið viðhald á húsinu.
Frárennslislagnir voru endurnýjaðar, baðherbergi tekið í gegn og sprunguviðgerðir framkvæmdar.
Söguleg sérstaða
Framnesvegur 22 er eitt hinna sögufrægu Bankahúsa við Framnesveg, teiknað af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, og byggt árið 1922. Bankahúsin eru merkilegt dæmi um íslenska byggingarsögu þar sem íslenskt burstabæjarform mætir áhrifum frá breskri húsagerð.
Húsin voru reist að frumkvæði Landsbankans sem tilraun með nýja gerð íbúðarhúsnæðis, þar sem sjálfstæðar íbúðir voru sameinaðar í heildstæða raðhúsabyggð með sérinngangi og garði. Framnesvegur 22 hefur að mestu varðveitt sitt upprunalega yfirbragð og húsið er friðað að utan.
Stutt í þjónustu, skóla, sundlaug, golfvöll, veitingastaði og miðbæinn í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um Framnesveg 22 gefur: Jason Kristinn Ólafsson í netfangið jason@betristofan.is eða í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali

Staðsetning
Framnesvegur 22, 101 Reykjavík