Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 105 Reykjavík

Laugavegur 143 301

95.900.000 kr.

886 þ.kr./m²

9 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
Stærð
108,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1930
Hæð
3. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
68.550.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
68.900.000 kr.
Brunabótamat
47.800.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson og Betri Stofan fasteignasala kynnir: Laugaveg 143. Einstaklega vönduð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð ásamt herbergi í kjallara. Stæði í bakgarði fylgir eigninni. Hægt er að kaupa allar þrjár íbúðirnar saman og eignast því allt húsið. Laugavegur 143 samanstendur af þremur fastanúmerum. Húsið var reist í kringum 1930 og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.  
Á árunum 2012-2024 var húsið allt tekið í gegn, lagnir, þak, gluggar, lóð og þá vor íbúðirnar endurgerðar. Endurbætur voru unnar í samvinnu við Minjastofnun Íslands. Aðalinngangur er frá Laugavegi og einnig er bakinngangur hjá bílastæðum. 

Íbúðin skiptist í anddyri/hol, stofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Íbúðinni fylgir 24,6 fm herbergi í kjallara sem er með aðgengi að baðherbergi.  
3,2 fm sérgeymsla er í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. 
Íbúðin er um 80,5 fermetrar og auk herbergis og geymslu er hún samtals 108,3 fm.

Íbúðin: 
Forstofa: Forstofa er með flotuðu gólfi. Góð lofthæð er í íbúðinni.
Eldhús: Innrétting er ljós, uppþvottavél. Arinn í eldhúsinu. Flot á gólfi og gluggi til norðurs.
Stofa: rúmgóð stofa með flotuðu gólfi, gluggi sem snýr út á Laugaveg. Fjórir gluggar snúa til suðurs.
Tvö svefnherbergi með flotuðu gólfi:  Fataskápar eru í stærra svefnherberginu. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu. Gluggi til norðurs. Salerni er upphengt. 
Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara hússins. Útgengi í baklóð þar sem sér bílastæði eru.
Aukaherbergi, rúmgott 24,6 fermetrar. Sameiginlegt baðherbergi með sturtu er í sameign.
Geymsla: Sérgeymsla að stærðinni 3,2 fm er í sameign hússins.

Húsið: Glæsilegt mikið endurnýjað, þak, gluggar og ytra byrði. Stutt er í alla þjónustu, sundlaug, samgöngur og eignin er mjög miðsvæðis. 
Lóðin er snyrtileg með einkabílastæðum.  

Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og í netfangið jason@betristofan.is 

Staðsetning

Laugavegur 143 301, 105 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin