Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Sumarhús· 805 Selfoss

Öndverðarnes Golf

Tilboð

60 myndir

Tegund
Sumarhús
Stærð
176 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Byggingarár
2019
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
125.500.000 kr.
Brunabótamat
98.900.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 - og Betri Stofan kynna: Glæsilegt 176 fm heilsárshús í golfparadí við Öndverðarnes í Grímsnesinu. Þetta er glæsileg eign á vinsælum stað í aðeins 45 mínútna keyrslu frá Reykjavík. Kiðhólsbraut 25. Bílastæði við húsið fyrir nokkra 5-6 bíla. Gestahús. Heitur og kaldur pottur. Útisturta. Steyptur körfuboltavöllur. Grassvæði til að tjalda eða setja hjólhýsi er á lóð. Sjón er sögu ríkari. 5 svefnherbergi og 3 baðherbergi samtals. Húsið er nálægt 15. og 16. holu á Öndverðarnesgolfvellinum. Sundlaug með tveimur heitum pottum er á svæðinu og frítt að nota. Golfbíll getur fylgt með í kaupum.

Eignin skiptist í anddyri, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, geymslu, eldhús, stofur, gestahús með baðherbergi(3) og svefnherbergi(5).
Fallegar flísar á gólfum. Flotað gólf. Gólfhiti. Steypt hús í bakgarði sem er með mikilli lofthæð og er teiknað fyrir golfhermi.

Húsið er fullbúið með 250 m2 verönd, heitum og köldum potti. Falleg lýsing er við húsið og á sólpalli. Grillaðstaða.

Húsið er skráð 151 fm auk 25 fm gestahúss. Öndverðanes sem áður var kallað Múraraland.
Rafmagnshlið er inná svæðið.
Umsjónarmaður starfar allt árið á svæðinu og sér m.a. um rekstur sundlaugar allt árið.

Búið er að gróðursetja töluvert á lóðinni sem er einnig kjarri vaxin.

Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni í útivist, veiði í Hvítá, frítt í sundlaug og 18 holu golfvöll. Stutt á Selfoss í alla þjónustu, u.þ.b. 14 mín akstur
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515.

Staðsetning

Öndverðarnes Golf, 805 Selfoss

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin