Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Einbýli· 210 Garðabær

Langafit 24

169.500.000 kr.

889 þ.kr./m²

48 myndir

Tegund
Einbýlishús á einni hæð
Stærð
190,6 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1963
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
146.850.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
149.950.000 kr.
Brunabótamat
98.100.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna:  Langafit 24 - Einbýli 210 Garðabær.

Laus strax við samning og eigandi skoðar SKIPTI á minni íbúð/íbúðum uppí.

Glæsilegt og algjörlega endurnýjað einbýlishús við Löngufit 24 í Garðabæ.
Um er að ræða einstaklega fallegt og vel skipulagt 190,6 fm einbýlishús, þar af 23,3 fm Stúdíóíbúð, á rólegum og fjölskylduvænum stað í Garðabæ.

Eignin hefur verið tekin mikið í gegn og endurnýjuð með áherslu á vandaðan frágang, fallega hönnun og góð efni. Gólfhiti er um alla eignina, votrými hafa verið flísalögð og allar innréttingar eru vandaðar Schmidt-innréttingar frá Parka. Nýtt þak er á húsinu sem og gluggar og hurðar.

Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, sjónvarpshol, þvottahús, geymslu og tvö baðherbergi. Í bílskúr hefur verið útbúin stúdíóíbúð, sem býður upp á fjölbreytta möguleika, hvort sem er til útleigu, fyrir fjölskyldumeðlimi, gesti eða sem sértækt rými fyrir heimilisfólk.

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Rúmgóð og falleg forstofa með góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu, björtu og fallega hönnuðu samliggjandi rými. Þaðan er gengið út á fallegan timburpall sem snýr til suðvesturs.
Eldhús: Glæsilegt og vandað eldhús með Schmidt-innréttingu frá Parka. Á borðplötum er vandaður SapienStone steinn, sem setur mikinn svip á rýmið. Eldhúsið er með innbyggðum heimilistækjum og ofni í vinnuhæð. Það er opið við stofu og borðstofu og myndar þannig skemmtilega og samhangandi heild.
Sjónvarpshol: Niður þrjú þrep úr holi er komið í rúmgott og glæsilegt sjónvarpshol sem getur einnig nýst sem notaleg betri stofa eða fjölskyldurými.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi III: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Þvottahús: Þvottahús er staðsett inn af eldhúsi. Flísar eru á gólfi og þaðan er hurð með beint útgengi í garð.
Baðherbergi: Glæsilegt og vandað baðherbergi með Schmidt-innréttingu frá Parka og SapienStone steini á borðplötu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með rúmgóðri walk-in sturtu, gólfhita og glugga.
Baðherbergi II: Fallegt og vandað baðherbergi með Schmidt-innréttingu frá Parka og SapienStone steini. Flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu og gólfhita.
Bílskúr / stúdíóíbúð: Í bílskúrnum hefur verið útbúin stúdíóíbúð sem býður upp á mikla möguleika. Hún getur hentað vel til útleigu, fyrir fjölskyldumeðlim, ungling eða gesti og gefur eigninni aukið notagildi.
 
Staðsetning: Eignin er einstaklega vel staðsett við Löngufit í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði.
Glæsilegt og algjörlega endurnýjað einbýlishús við Löngufit 24 í Garðabæ.

Bókið skoðun í dag: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Langafit 24, 210 Garðabær

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin