Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Raðhús· 210 Garðabær

Hörgslundur 17

165.000.000 kr.

920 þ.kr./m²

30 myndir

Tegund
Raðhús á einni hæð
Stærð
179,4 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1970
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
135.450.000 kr.
Brunabótamat
98.450.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali, jason@betristofan.is, sími 7751515 kynnir: Raðhús; Hörgslundur 17, 210 Garðabæ. Nálægt Garðatorgi, Flataskóla og Ásgarði.

Glæsilegt og mikið endurnýjað raðhús á einni hæð með tvöföldum bílskúr og góðum garði til suðurs. Húsið er mjög vel staðsett innst í rólegri botnlangagötu á fjölskylduvænum stað í Garðabænum. Eignin er samtals um 180 fm og skiptist í rúmgóða og bjarta stofu með góðri lofthæð, flísalagt með gólfhita og útgengi út í góðan garð til suðurs með heitum potti. 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, opið eldhús, þvottahús, geymslur og tvöfaldan bílskúr.
 
Frábær staðsetning á rólegum og fjölskylduvænum stað. Einnig er stutt í fjölbreytta þjónustu í Garðabænum s.s. allar verslanir, veitingastaði, lágvöruverslun og aðra þjónustu á í Garðatorgi. Skólar á öllu skólastigum eru í göngufæri.

 
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Nýjar flísar á gólfi, fataskápur, gestasnyrting inn af forstofu.
Gestasnyrting: Flísalagt, VOLA blöndunartæki, vaskur, upphengt salerni og speglaskápur.
Stofur: Stórar og bjartar stofur með stórum gluggum og hátt til lofts, flísar á gólfi. Útgengi út á suðurpall. Gólfhiti. Möguleiki er að bæta við svefnherbergi nr. 4. Gólfhiti.
Eldhús: Innrétting frá HTH með steini frá S.Helgasyni, kvartz. Vönduð tæki, tveir ofnar, annar með innbyggðri örbylgju, helluborð með fimm hellum. Gólfhiti. 
Þvottahús: Staðsett inn af eldhúsi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Hurð út úr þvottaherbergi út í framgarð.

Herbergjagangur: Flísar á gólfi, gólfhiti, gengið inn í 3 svefnherbergi og baðherbergi. Fataskápur á gangi. 
Herbergi I: Parket á gólfi. Gluggastykki ný tilbúin til innsetninga.
Herbergi II: Parket á gólfi. Gluggastykki ný tilbúin til innsetninga.
Baðherbergi II: Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta, VOLA blöndunartæki, vaskur og borðplata úr kvartz, innrétting með neðri skápum og efri speglaskáp með innfelldri lýsingu.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, gott skápapláss, útgengt út í garð. Nýtt hurðastykki er til og fylgir með í geymsl. Gluggastykki tilbúin til innsetninga.
Bílskúr: Tvöfaldur, 43,4 fm, með rafmagni, heitu og köldu vatni. Stúkuð geymsla inn í bílskúr.
Möguleiki á að breyta hluta bílskúr í íbúð. Teikningar með tillögu arkitekts fylgja.

Raðhús á einni hæð með tvöföldum bílskúr innst í botnlanga á fjölskylduvænum og rólegum stað í Garðabænum. 

Allar upplýsingar veitir: 
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fastiengasali.


 

Staðsetning

Hörgslundur 17, 210 Garðabær

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin