Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Raðhús· 210 Garðabær

Stekkholt 61

174.900.000 kr.

765 þ.kr./m²

26 myndir

Tegund
Raðhús á tveimur hæðum
Stærð
228,7 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Byggingarár
2026
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
13.350.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
14.900.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan og Guðbjörg Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali kynna:  Einstaklega vel skipulagt endaraðhús með innbyggðum bílskúr, við Stekkholt 61, í Hnoðraholti, Garðabæ. Eignin er skráð 228,3 fm og skiptist í fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, 3 baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, anddyri og bílskúr. Frá stofu er gengið út á góðar suðaustur svalir. 

Eignin skilast tilbúin til innréttinga að innan skv. skilalýsingu. Að utan skilast húsin frágengin, einangruð að utan og klædd álklæðningu, Velfac ál/tré gluggar.
Bílastæði hellulagt með snjóbræðslu undir. Lóð skilast að öðru leiti grófjöfnuð samkvæmt skilalýsingu. 
Nálgist skilalýsingu og nánari upplýsingar hér:
Guðbjörg Guðmundsdóttir í síma 8995533  gudbjorg@betristofan.is

Nánari lýsing:
Stekkholt 61 er endaraðhús í nýrri fjögurra húsa raðhúsalengju sem nú er í byggingu í Hnoðraholti Garðabæ. Frá götu er aðkoma að efri hæð hússins, þar er innbyggður bílskúr, stórt anddyri, stofa, eldhús, borðstofa og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á góðar svalir til suðausturs.
Á neðri hæð er hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi, þrjú rúmgóð barnaherbergi, öll yfir 10fm., sjónvarpshol, rúmgott baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu og skolvaski.  Af gangi neðri hæðar er útgengt í garð.

 Um er ræða glæsileg og vel skipulögð raðhús í nýju og skemmtilegu hverfi í Garðabæ. Hnoðraholt er vel staðsett nýtt hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og gott aðgengi er að útivistasvæðum Garðabæjar svo sem Heiðmörk, Vífilstaðavatni og golfvelli GKG. 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar Veita: 
Guðbjörg Guðmundsdóttir í síma 899 5533 netfang: gudbjorg@betristofan.is   
Þórhallur Biering Guðjónsson í síma 896 8232  netfang: thorhallur@betristofan.is 
Jason Kristinn Ólafsson í síma 775 1515 netfang: jason@betristofan.is 

 

Staðsetning

Stekkholt 61, 210 Garðabær

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin