Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 580 Siglufjörður

Laugarvegur 37

42.900.000 kr.

358 þ.kr./m²

15 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
Stærð
120 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
32.650.000 kr.
Brunabótamat
61.650.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Laugarvegur 37, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0679 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Laugarvegur 37 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0679, birt stærð 120.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða mikið endurnýjaða fjagra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi. Eigninni fylgir bílskúr. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og bílskúr. Rúmgóðar svalir snúa í suður með aðgangi að garði í sameign. Til sameignar telst stigagangur, hjólageymsla, sorpgeymsla og garður. Búið er að endurnýja vatnslagnir, þak, hluta af gluggum, gólfefni, innihurðar og algjör endurnýjun á eldhúsi. 

Forstofa: er í opnu rými með fljótandi parket um eignina. 
Eldhús: er í opnu rými með stofu og forstofu. Eldhús er mjög rúmgott með góðu skápaplássi og hefur verið endurnýjað að fullu. Parket er fljótandi um alla eignina utan baðherbergis. 
Stofa: er með miklu gluggarými með frábæru útsýni og útgang út á rúmgóðar suður svalir.
Svefnherbergi: eru þrjú með parket á gólfi og góðu gluggarými.
Baðherbergi: er með innréttingu, vask, baðkari, salerni og handklæðaofn. Flísar eru á gólfi og við baðkar. 
Þvottahús: er í sameiginlegu rými með íbúð á sömu hæð. En geymsla er aflokuð í sama rými. Gólf er lakkað. Vaskur er í rými og opnanlegur gluggi. 
Geymsla: er aflokuð í sameignarrými með íbúð á sömu hæð. 
Bílskúr: er 23,9fm að stærð með lökkuðu gólfi og rafdrifinni hurð og ráphurð.
Garður: er í sameign í skjólgóðu rými sunnan við eignina. 

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin