Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 350 Grundarfjörður

Grundargata 14 (201)

Tilboð

13 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sérinngangi
Stærð
108,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamat
35.300.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
39.200.000 kr.
Brunabótamat
67.800.000 kr.
Laus
Strax

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Glæsileg 108,7 fm íbúð við Grundargötu 14 í 350 Grundarfirði. Eignin er 3-4ra herbergja með sér inngangi á efri hæð, á útsýnisstað. Björt íbúð. Stórar stofur með frábæru útsýni, hjónasvíta, tvö baðherbergi og þrennar svalir.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Bókið skoðun: jason@betristofan.is 

Inngangur: Gengið er upp tröppur að sérinngangi íbúðar, þar eru góðar svalir sem nýtast íbúðinni vel.
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskáp.
Alrými / stofa: Mjög rúmgott og bjart stofurými með fallegu útsýni yfir sjóinn og til fjalla, útgengt er á svalir.
Eldhús: Opið við stofurýmið, þar er falleg sérsmíðuð hvít innrétting, veggföst eldunareyja og innbyggð tæki.
Hjónasvíta: Glæsileg hjónasvíta með sér flísalögðu baðherbergi, fataherbergi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi. Mögulegt er að stúka þriðja svefnherbergið af innaf alrýminu.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með góðri innréttingu og sturtu.
Þvottahús: Sér innan íbúðar.
Hjólageymsla er staðsett á lóð hússins á jarðhæð.

Íbúðin er fullbúin en án aðal gólfefna, eftir er að setja upp innihurðir en þær eru á staðnum og fylgja með í kaupunum.
Húsið er forsteypt, byggingarár er 2022. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Ný falleg og vel skipulögð eign á einstökum útsýnisstað við sjóinn.
350 Grundarfjörður. Húsið er staðsett hér skv. ja.is

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Staðsetning

Grundargata 14 (201), 350 Grundarfjörður

Fleiri eignir á skrá

Öll söluskráin