Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 101 Reykjavík

Hallveigarstígur 8A

67.400.000 kr.

956 þ.kr./m²

22 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með sérinngangi
Stærð
70,5 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1929
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
66.750.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
66.500.000 kr.
Brunabótamat
37.650.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna: 
Bjarta og mikið endurnýjaða tveggja herbergja 70,5 fm íbúð á fyrstu hæð að Hallveigarstíg 8a með sérinngangi. Íbúðin er einstaklega vel staðsett í miðbænum á vinsælum og friðsælum stað. Útgengt er úr stofu á lítinn pall. Krónuverslun í 50 metra fjarlægð og stutt í alla helstu þjónustu og verslanir. 

Nánari lýsing:

Forstofa er með dökkum flísum á gólfi og frá henni er gengið inn í lítið parketlagt hol. Þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðar. 
Eldhús er með mjög rúmgóðri og endurnýjaðri innréttingu frá IKEA. Hvítir skápar með lýsingu og viðarborðplötu. Bakaraofn og gaseldavél. Dökkar flísar á gólfi. Gert er ráð fyrir uppþvottavél sem fylgir eigninni. 
Stofa er með parketi á gólfi og svalahurð út á lítinn pall sem snýr til suðvesturs.  
Svefnherbergið er mjög rúmgott með stórum glugga og parketi á gólfi. Stór fataskápur fylgir með. 
Baðherbergið er endurnýjað. Baðkar með sturtu og upphengt klósett. Falleg grá baðinnrétting með vaski og stórum upplýstum spegli yfir. Hvít þvottahúsinnrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Svartur handklæðaofn. Stórar dökkgrár flísar á gólfi og ljósgráar á veggjum í kringum klósett og bað. Virkilega rúmgott og fallegt baðherbergi. 

Viðhald:
Íbúðin var öll tekin í gegn að innan árið 2020 og var vandað mjög til verka. Meðal annar var skipt um gólfefni, baðherbergi endurnýjað ásamt raflögnum. Millihurðir í eldhús voru einnig endurnýjaðar ásamt gagngerri endurnýjun á eldhúsinu.
Að sögn eignenda er ytra byrði hússins í góðu ásigkomulagi. Haustið 2021 var skipt um alla glugga á suðurhlið og allt húsið tekið í gegn að utan, gert við allar sprungur/múr og málað. Þá var þakið yfirfarið og hefur verið reglulega yfirfarið síðan þá. Að sögn eigenda voru frárennslislagnir myndaðar árið 2018 og reyndust í fínu lagi. Í ljós kom að lagnirnar voru úr plasti.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Staðsetning

Hallveigarstígur 8A, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin