Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða
Fróðleikur

Grein7. apríl 2024

Fasteignaverð 2024 á uppleið

Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali

Tölvuteikning af þakíbúðum með stórum svölum yfir miðborginni

Hvernig er þróun á fasteignaverði næstu misseri?

Jason fasteignasali skoðaði spá lánastofnana sem telja að vextir hafi náð hámarki og að næstu 2-3 mánuði verða þeir svipaðir, en fara eftir það lækkandi. Má reikna með því að í árslok verði stýrivextir komnir niður í 8% og í 6% ári síðar.

Hætta er á að talsvert dragi úr framboði nýrra eigna þegar lengra líður á árið, sem gæti leitt til meiri verðhækkunar. Mörg nýbyggingaverkefni eru að verða tilbúin til afhendingar og búin að vera í sölu í allt að 10 mánuði, eins og t.d. Borgartún 24, Vesturvin, Snorrabraut, Bjarkarholt í Mosfellsbæ.

Íslandsbanki spáir því að íbúðaverð hækki um 5,5% árið 2024, um 3,4% 2025 og um 4,3% árið 2026.

Íbúðir á Heklureitnum eru komnar í forsölu, og byrjaðar að seljast en þar koma 82 íbúðir í sölu á næstu mánuðum, en forsala er hafin á 9 stærri íbúðum.