Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 108 Reykjavík

Orkureiturinn D1 512

166.900.000 kr.

1.100 þ.kr./m²

55 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
151,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
5. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
104.350.000 kr.

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Suðurlandsbraut 40, íbúð 512 er 3ja herbergja 151,7 fm. Íbúðin er við Suðurlandsbraut og snýr til austurs og einnig til vesturs inn í fallegan og skjólgóðan inngarð.
Stæði í bílageymslu, merkt B055 fylgir með skv. 49 ára leigusamningi.

Nánari lýsing:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Hjónasvíta með fataskápum og sér baðherbergi með baðkari. Gluggar til vesturs.
Herbergi II er með fataskápum og snýr til austurs.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmónía.
Alrými tengir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum til vesturs og úr stofu er gengið út á vestursvalir.
Sér þvottahús íbúðar er rúmgott með góðri innréttingu.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 18,7 fm.
Innréttingaþema er Safír Harmónía. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Þórhallur Biering Guðjónsson , í síma 896-8232, tölvupóstur thorhallur@betristofan.is.

Staðsetning

Orkureiturinn D1 512, 108 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin