Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 200 Kópavogur

Ásbraut 1

Tilboð

27 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
164,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
121.300.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
124.200.000 kr.
Brunabótamat
120.000.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Glæsilega þriggja herbergja efri sérhæð/penthouse með þakvölum út af stofu í vönduðu og vel byggðu húsi við Ásbraut 1 í Kópavogi. Íbúðin nær yfir heila hæð, er með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð og státar af einstöku útsýni til sjávar og fjalla. Lyfta gengur beint upp í íbúðina af jarðhæð. Tvennar svalir, annars vegar 9 fm (austur/suður) út frá svefnherbergi og hins vegar 52 fm (suður/vestur) þaksvalir, gengið út frá stofu, sem eru hellulagðar með snjóbræðslu. Eignin er skráð 164,8 fm og er með einkastæði í opinni bílageymslu ásamt rúmgóðri geymslu í sameign. Hiti er í öllum gólfum, innfelld lýsing, aukin lofthæð í allri eigninni, vandaðar innréttingar og tæki frá AEG. Eigninni fylgir innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Snjóbræðsla er í aksturs- og gönguleiðum við húsið. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð og rúmgóð með skápum.
Eldhús: Glæsilegt og stórt eldhús með fallegri innréttingu með eyju. Vönduð tæki frá AEG. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. 
Stofa/borðstofa: Einstaklega bjart alrými með eldhúsi sem er bæði stofa og borðstofa með glæsilegu útsýni og kvöldsól. Harðparket á gólfum.
Herbergi: Rúmgott svefnherbergi með harðparketi og góðum skápum.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með harðparketi á gólfum ásamt skápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á 9 fm svalir til austurs/suðurs.
Baðherbergi: Upphengt salerni, falleg innrétting, baðkar og sturta. Flísalagt í hólf og gólf með þremur gluggum (tveir opnanlegir).
Þvottahús/geymsla: Flísalagt með innréttingu, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Geymslan er 23,6 fm. með epoxy-kvarts gólfefni, staðsett á jarðhæð. 
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð kjallara einnig með epoxy-kvarts gólfefni.

Gólfhiti er á allri íbúðinni, eikarharðparket í alrými og herbergjum og ljósar flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Innfelld ledlýsing er í alrými, svefnherbergi og baðherbergi. Innihurðir eru yfirfelldar, hvítar og allar 2.1m á hæð.

Eignin er staðsett innst í botlanga í friðsælu, rótgrónu og rólegu hverfi í hjarta Kópavogs. Stutt er í verslanir, söfn, kirkju, heilsugæslu sem og fallegar gönguleiðir um Kársnesið og í Fossvoginn. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Staðsetning

Ásbraut 1, 200 Kópavogur

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin