Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Tví-/þrí-/fjórbýli· 580 Siglufjörður

Túngata 20a

Tilboð

16 myndir

Tegund
Tvíbýli
Stærð
95,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
0
Byggingarár
1923
Hæð
1. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamat
28.350.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
28.050.000 kr.
Brunabótamat
46.450.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Túngata 20, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0965 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Túngata 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0965, birt stærð 95.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða parhús á einni hæð í miðbæ Siglufjarðar með suðurpalli og garði. Eignin samanstendur af rúmgóðri forstofu, eldhúsi, stofu/borðstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu og háalofti. Búið er að heilflota gólf eignarinnar og setja gólfhita. Einnig hafa vatnslagnir verið endurnýjaðar og settur nýr brunnur í lóð. Stigi er upp á háaloft sem er mjög rúmgott og miklir möguleikar á að nýta sem svefnherbergi en einnig var salerni á efri hæð sem hefur verið fjarlægt. Skjólgóður pallur er sunnan megin við eignin og garður aftan við eign. 

Forstofa: er rúmgóð með flotuðu gólfi og fataskáp. 
Eldhús: er með góðu skápaplássi og borðkrók. 
Stofa/borðstofa: liggja saman með góðu gluggarými. Opið er inn í eldhús og forstofu. 
Svefnherbergi: eru tvö bæði opin í tvo enda. Annað er opið inn í geymslu sem er síðan opin inn á baðherbergi. Hitt er síðan opið inn á baðherbergi og forstofu. 
Baðherbergi: er bæði með sturtu og baðkari. Einnig er  ágætt skápapláss, salerni og vaskur. Opnanlegt fag er á baðherbergi. 
Geymsla: er með góðu hilluplássi og opnanlegum glugga. Hitaveituinntak og gólfhitalagnir eru inn í geymslu. 
Háaloft: er með fellanlegum stiga. Ágætis lofthæð er í miðrými háaloftsins og síðan undir súð. Miklir möguleikar eru á að nýta rýmið á háalofti. 
Garður: er grasilagður með hellulögðum palli og timbur skjólavegg sunnan við eignina. 

Staðsetning

Túngata 20a, 580 Siglufjörður

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin