Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 210 Garðabær

Vetrarbraut 2(212)

114.900.000 kr.

962 þ.kr./m²

21 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
119,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
2. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
44.550.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
48.350.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir við Vetrarbraut 2-4, Vetrarmýri, nýju og heillandi hverfi við golfvöll GKG í Garðabæ
Íbúð 212 er 119,5 fermetra fjögurra herberegja íbúð á fyrstu hæð. Steinn á borðplötum eldhúsa og loftskiptikerfi í íbúð. Eigninni fylgir frístundaskúr. Tvennar svalir og  bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Bókið skoðun hjá Dagrúnu Davíðs. löggiltum fasteignasala í síma 866-1763 / dagrun@betristofan.is - getum sýnt daglega



www.vetrarbraut.is

Nánari lýsing:
Eignin skiptist í anddyri, gestasnyrtingu, eldhús, borðstofu og stofu í rúmgóðu og björtu alrými þaðan sem gengið er út á rúmgóðar svalir, svefnherbergi með góðum fataskápum, auka herbergi með fataskáp gengið út á svalir, baðherbergi og þvottahús. Í sameign er hjóla og vagnageymsla. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu N16 ásamt frístundaskúr 13,5 fm. 
Eldhús er vel útbúið, sérsmíðaðar Voke III innréttingar, á borðplötum er kvarts steinn. Vönduð tæki eru í eldhúsi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. ofn í vinnuhæð, helluborð í eyju, eldhús- og blöndunartæki að vandaðri gerð.
Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.

Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti.
Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

Um er að ræða bjartar og fallegar íbúðir í vandaðri nýbyggingu í einstöku umhverfi, nálægð við Golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur, nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar svo fátt sé upptalið í skemmtilegu nýju hverfi.
Með öllum íbúðum fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu í það minnsta eitt fyrir hverja íbúð og fylgja bílskúrar sumum íbúðum að auki.  
Vandað hefur verið að allri hönnun innan sem utan.
Byggingar eru hannaðar af Arkís, aðalhönnuður er Arnar Þór Jónsson arkitekt og hafði Thelma Guðmundsdóttir innanhúsarkitekt umsjón með innanhúshönnun. Hverfið í  heild, Vetrarmýri, er hannað af Sigurði Einarssyni arkitekt og skipulagshönnuði hjá Batteríinu.


Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir, í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Dagrún Davíðsdóttir, í síma 866-1763, tölupóstur dagrun@betristofan.is
Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232, tölvupóstur thorhallur@betristofan.is

Staðsetning

Vetrarbraut 2(212), 210 Garðabær

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin