Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Atvinnuhúsnæði· 101 Reykjavík

Laufásvegur 41

Tilboð

55 myndir

Tegund
Hótel / Gistiheimili
Stærð
292,8 m²
Herbergi
12
Svefnherbergi
11
Baðherbergi
5
Byggingarár
1924
Hæð
1. hæð
Inngangur
Fleiri en einn
Fasteignamat
139.550.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
145.150.000 kr.
Brunabótamat
151.150.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Laufásvegur 41, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 200-7363 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem gistihús og er með virkt gistileyfi.

Eignin Laufásvegur 41 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-7363, birt stærð 292,8 fm.

Eignin skiptist í:
Stúdíó íbúð, 34fm með sérinngangi:
Komið inn í alrými með samliggjandi stofu, eldhúsi og svefnaðstöðu. Eldhús með innréttingu með innbyggðum ofni, spanhelluborði, eldhúsvaski og uppþvottavél ásamt upphengdri string hillu. Rúmgott baðherbergi með "walk in" sturtu með glervegg, Burlington klósetti og vaski. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Snjall lás með pinkóða til að komast inn. Standsett árið 2023. Sprinklerkerfi.

3ja herbergja íbúð með sérinngangi:
Komið inn í alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi. Eldhúsinnrétting með ofni í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og spanhelluborði. 2 rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergi með "walk in" sturtu með glervegg, baðinnréttingu með neðri skápum, vask og spegli fyrir ofan vask. Snjall lás með pinkóða til að komast inn. Standsett árið 2023. Sprinklerkerfi.

Herbergi:
Inngangur í herbergi er frá garði. 8 herbergi, 3 baðherbergi, 3 geymslur, sameiginlegt þvottahús. 6 þriggja manna svefnherbergi og 2 tveggja manna svefnherbergi. 3 herbergi á 2 og 3 hæð. 2 þriggja manna herbergi á 4 hæð. Baðherbergi með sturtu, klósetti og vask á hverri hæð. Auka salerni á 2. hæð. Búið er að teikna breytingu þar sem herbergjum er breytt í 2 íbúðir. 3ja herbergja íbúð á 2. hæð og 4ja herbergja íbúð með 2 baðherbergjum á 3 og 4 hæð. 

Staðsetning

Laufásvegur 41, 101 Reykjavík

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin