Fara beint í efni
Betri Stofan fasteignasala, forsíða

Fjölbýli· 210 Garðabær

Vetrarbraut 2 (405)

Tilboð

51 myndir

Tegund
Fjölbýlishús með lyftu
Stærð
166,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Hæð
4. hæð
Inngangur
Sameiginlegur
Lyfta
Já
Fasteignamat
84.150.000 kr.
Fasteignamat næsta árs
92.000.000 kr.

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir við Vetrarbraut 2-4, í nýju og heillandi hverfi við golfvöll GKG í Garðabæ.
Íbúð 405 er 166,3 fermetra íbúð á fjórðu hæð, efstu hæð. Steinn á borðplötum og loftskiptikerfi, hiti í gólfum. Eigninni fylgir bílskúr ásamt bílastæði (B62) í lokaðri bílageymslu. Lofthæðin er góð í íbúðinni. Fallegt útsýni. Tvennar svalir. 
Bókið einkaskoðun Guðbjörg Guðmundsdóttir sími 899 5533 gudbjorg@betristofan.is


https://vetrarbraut.is/

Nánari lýsing:
Eignin skiptist í hol, eldhús, borðstofu, stofu og sjónvarpsstofu í rúmgóðu og björtu alrými þaðan sem gengið er út á tvennar svalir. Glæsileg rúmgóð hjónasvíta með góðum fataskápum og sér baðherbergi. Aukasvefnherbergi er rúmgott með fataskáp, tvö baðherbergi og þvottahús. Í sameign er hjóla og vagnageymsla ásamt 7,3 fm sérgeymslu íbúðar. Bílskúr íbúðar 24,6 fm og sérmerkt bílastæði nr. 62,  í lokaðri bílageymslu.

Eldhús er vel útbúið, sérsmíðaðar Voke III spónlagðar eikar innréttingar með innfelldum gripum, á borðplötum er kvarts steinn. Vönduð tæki eru í elhúsi innbyggður Siemens ísskápur, uppþvottavél og vínskápur. Gaggenau ofn og sambyggður ofn/örbylgjuofn (Combi ofn) í vinnuhæð, helluborð með innbyggðri viftu, eldhús- og blöndunartæki að vandaðri gerð.
Íbúðin skilast án gólfefna utan baðherbergja og þvottahús sem skilast flísalögð.

Rými eru hönnuð með áherslu á loftgæði, hljóðvist og náttúrulega birtu. Hver íbúð hefur loftskiptikerfi sem stjórnað er innan íbúðar, slíkt eykur loftgæði og stuðlar að heilnæmu innilofti.
Húsið er klætt flísum og álkæðningu, slétt og bára. klæðningar eru í mismunandi litum, náttúrulegum jarðlitum sem tengir bygginguna umhverfinu, lögð er áhersla á að húsin séu viðhaldslétt, flísar og álklæðningar og ál/tré gluggar.

Um er að ræða bjartar og fallegar íbúðir í vandaðri nýbyggingu í einstöku umhverfi, nálægð við Golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur, nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar svo fátt sé upptalið í skemmtilegu nýju hverfi.
Með öllum íbúðum fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu í það minnsta eitt fyrir hverja íbúð og fylgja bílskúrar sumum íbúðum að auki.  
Vandað hefur verið að allri hönnun innan sem utan.
Byggingar eru hannaðar af Arkís, aðalhönnuður er Arnar Þór Jónsson arkitekt og hafði Thelma Guðmundsdóttir innanhúsarkitekt umsjón með innanhúshönnun. Hverfið í  heild, Vetrarmýri, er hannað af Sigurði Einarssyni arkitekt og skipulagshönnuði hjá Batteríinu.


Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Dagrún Davíðsdóttir, í síma 866-1763, tölupóstur dagrun@betristofan.is
Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232, tölvupóstur thorhallur@betristofan.is

Staðsetning

Vetrarbraut 2 (405), 210 Garðabær

Sambærilegar eignir

Öll söluskráin